
Samkeppniseftirlitið hefur skilað umsögn til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis um frumvarp til laga um tímabundna lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti úr 24 prósent í 11 prósent á tímabilinu 1. maí til 31. ágúst 2026.
Í umsögninni er bent á að samkeppni á íslenskum eldsneytismarkaði einkennist af fákeppni og að fyrri greiningar hafi sýnt vísbendingar um takmarkaða verðsamkeppni. Við slíkar aðstæður sé ekki unnt að ganga að því vísu að lækkun opinberra gjalda skili sér sjálfkrafa til neytenda í lægra verði.
Samkeppniseftirlitið telur því mikilvægt að stjórnvöld hafi skýr úrræði til að tryggja að lækkunin skili sér að fullu til almennings. Frumvarpið gerir ráð fyrir að Samkeppniseftirlitið hafi sérstakt hlutverk við að fylgjast með verðþróun og gera ráðherra samkeppnismála grein fyrir ef lækkunin skilar sér ekki til neytenda. Í slíkum tilvikum geta stjórnvöld gripið til tímabundinna aðgerða, svo sem verðþaks eða annarrar stýringar á verðlagningu.
Í umsögninni segir: „Ætla verður að áform löggjafans um bein afskipti stjórnvalda af verðlagningu á samkeppnismarkaði, sem birtist í frumvarpinu, helgist af vantrú á því að aðstæður á markaðnum og almennar samkeppnisreglur dugi til að tryggja hagsmuni almennings til skemmri tíma. Eins og rakið er hér að framan kann sú vantrú að vera á rökum reist.“
Eftirlitið gerir ekki athugasemdir við þá leið sem lögð er til í frumvarpinu, í ljósi aðstæðna á markaðnum og markmiðs um að verja hagsmuni neytenda til skemmri tíma. Jafnframt er lögð áhersla á að til lengri tíma þurfi að efla samkeppni á eldsneytismarkaði þannig að ekki þurfi að grípa til sambærilegra inngripa í framtíðinni.
Samkeppniseftirlitið hefur þegar hafið undirbúning að auknu eftirliti með markaðnum og gerir ráð fyrir að fá til þess viðeigandi fjárheimildir.
Lesa má umsögn Samkeppniseftirlitsins í heild sinni hér.
"*" gefur til kynna skyldusvið