Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Verðhækkanir: Opinber umfjöllun keppinauta og hagsmunasamtaka þeirra getur farið gegn samkeppnislögum

18. desember 2024

Í fjölmiðlum hefur undanfarið verið fjallað talsvert um verðhækkanir sem framundan kunni að vera og neytendur muni finna fyrir. Til umfjöllunar hafa verið ýmsar mikilvægar neytendavörur eins ogmatvæli og raforka.

Keppinautar og hagsmunasamtök fyrirtækja hafa tekið þátt í þessari opinberu umræðu. Nefna má sem dæmi að starfsmenn tveggja fyrirtækja sem eru keppinautar í framleiðslu tiltekins vöruflokks mættu saman í umræðuþátt og ræddu verðhækkanir. Í samtali þeirra voru færð fyrir því rök að hækkandi hráefnisverð hefði leitt til hækkunar á umræddum vörum til
neytenda og boðuðu þeir jafnframt að frekari verðhækkanir væru í farvatninu. Í öðru tilviki voru tekin viðtöl við stjórnendur dagvörukeðja og haft eftir þeim að verulegar hækkanir væru framundan.

Þá eru nýleg dæmi um að forsvarsmenn hagsmunasamtaka fyrirtækja hafi tjáð sig opinberlega um að framundan séu hækkanir á ýmsum nauðsynjavörum og eftir atvikum fært rök fyrir nauðsyn slíkra hækkana.

Samkeppnislögin setja keppinautum og samtökum þeirra skorður

Af þessu tilefni er rétt að minna á að samkeppnislög banna hvers konar samráð milli fyrirtækja sem hefur það að markmiði eða af því leiðir að komið sé í veg fyrir samkeppni eða hún takmörkuð. Það getur til dæmis talist til ólögmæts samráðs ef keppinautar ræða saman um væntanlegar verðhækkanir eða miðla upplýsingum um það hver til annars, þ.á m. í opinberri umræðu, t.d. fjölmiðlum.

Til þess að samkeppni þrífist þurfa fyrirtæki að búa við ákveðna óvissu um það hvernig keppinautarnir hyggist bregðast við utanaðkomandi aðstæðum hverju sinni, s.s. verðhækkunum frá
birgjum. Í samkeppnisumhverfi leita fyrirtæki mismunandi leiða til að bjóða vörur eða þjónustu á sem hagstæðustu verði, s.s. að hagræða í rekstri, leita betri kjara hjá öðrum birgjum eða draga úr arðgreiðslum. Búi fyrirtæki hins vegar yfir vitneskju um viðbrögð keppinautanna dregur úr hvötum þeirra til að keppa og halda verði niðri.

Meðal annars af þessum ástæðum banna samkeppnislög einnig hvers konar samkeppnishindranir af hálfu hagsmunasamtaka fyrirtækja. Undir það bann fellur til dæmis upplýsingamiðlun samtaka um væntanlegar hækkanir eða sameiginlegur rökstuðningur þeirra fyrir hækkunum.

Viðurkennt er að háttsemi af þessu lagi sé sérstaklega skaðleg á fákeppnismörkuðum. Fyrirtæki og hagsmunasamtök þeirra mega vænta þess að Samkeppniseftirlitið taki vísbendingar um samkeppnishamlandi háttsemi sem hér er lýst til alvarlegrar athugunar. Brot á samkeppnislögum geta varðað ströngum viðurlögum.

Árétting til fyrirtækja og samtaka þeirra

Með framangreint í huga telur Samkeppniseftirlitið mikilvægt að brýna eftirfarandi fyrir fyrirtækjum og
samtökum þeirra:

  • Fyrirtæki ættu undir engum kringumstæðum að
    miðla upplýsingum til keppinauta um fyrirhugaðar eða líklegar breytingar á
    verði, hvorki opinberlega, á vettvangi hagsmunasamtaka, milliliðalaust, né með
    öðrum hætti.
  • Hagsmunasamtökum fyrirtækja ber að fara gætilega
    þegar kemur að umræðu og fræðslu sem getur haft áhrif á markaðshegðun
    félagsmanna. Öll þátttaka þeirra í umræðu um verð og verðlagningu er
    sérstaklega varhugaverð og ætti ekki að eiga sér stað nema tryggt sé að hún sé
    innan þeirra marka sem lög leyfa.
  • Á samkeppnismarkaði á hækkun á aðfangaverði ekki að
    leiða sjálfkrafa til hækkunar á verði til neytenda. Samkeppnislög gera ráð
    fyrir því að hvert og eitt fyrirtæki geri eigin ráðstafanir og taki
    sjálfstæðar ákvarðanir til að bregðast við slíkum áskorunum, á sínum eigin
    rekstrarlegu forsendum og án alls samráðs við keppinauta eða hvatningar
    frá hagsmunasamtökum.
  • Framangreint á við óháð því hvort í hlut eiga framleiðslufyrirtæki,
    innflutningsfyrirtæki, aðrir birgar eða smásalar.

Nánari leiðbeiningar til hagmunasamtaka fyrirtækja og upplýsingar um fyrri mál af þessum toga má finna á þessari leiðbeiningarsíðu.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Samrunamál í sumar, tafir og ný mál

Vegna sumarleyfa og mikilla anna við rekstur samrunamála sem nú eru til formlegrar meðferðar (þegar tilkynntir samrunar) er fyrirsjáanlegt að tafir ve...
  • 23. júní 2026
  • Fréttir

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...