Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Ábati vegna íhlutunar Samkeppniseftirlitsins um 17-29-föld fjárframlög til eftirlitsins árin 2014-2023

2. september 2024
snowcap mountain

Samkeppniseftirlitið birtir í dag
mat á reiknuðum ábata vegna íhlutunar Samkeppniseftirlitsins árin 2014-2023 í
riti nr. 4/2024, Reiknaður ábati vegna íhlutunar Samkeppniseftirlitsins 2014-2023. Einnig
birtir Samkeppniseftirlitið í dag rit nr. 3/2024, Reiknaður ábati vegna íhlutunar Samkeppniseftirlitsins, lýsing á
aðferðafræði og forsendum
. Matið byggir á leiðbeiningum frá Efnahags- og
framfarastofnuninni (OECD) og hefur verið rýnt af óháðum sérfræðingi.

Reiknaður ábati
vegna íhlutunar Samkeppniseftirlitsins vegna samráðs, misnotkunar á
markaðsráðandi stöðu og samkeppnishamlandi samruna á tíu ára tímabilinu 2014-2023
nam 0,30-0,49% af vergri landsframleiðslu á sama tímabili, eða sem nemur 17-29-földum
fjárframlögum til stofnunarinnar á tímabilinu. Reiknaður ábati var að meðaltali
10,7-17,7 ma.kr. á ári hverju á tímabilinu 2014-2023, á verðlagi ársins 2023.

Aðferðafræði, forsendur og útreikningar hafa verið rýnd af
óháðum sérfræðingi, dr. Jóni Þór Sturlusyni, hagfræðingi. Hér má nálgast minnisblað hans vegna rýninnar.

Bakgrunnsupplýsingar

Samkeppniseftirlitið hefur áður birt niðurstöður
greiningarinnar í riti nr. 4/2023,
Reiknaður ábati vegna íhlutunar Samkeppniseftirlitsins 2013-2022, þar
sem heildarniðurstöður greiningarinnar voru birtar til og með ársins 2022. Í
kjölfar þeirrar útgáfu birti Samkeppniseftirlitið á vefsíðu sinni pistil nr. 2/2024,
Um reiknaðan ábata af íhlutunum Samkeppniseftirlitsins. Á undirbúningsstigi
greiningarinnar birti Samkeppniseftirlitið umræðuskjal nr. 1/2023 þar sem
áhugasömum var gefið tækifæri til að setja fram sjónarmið.

Greiningin styðst við leiðbeiningar OECD, Guide for helping competition authorities assess the expected impact of their activities. Byggja leiðbeiningarnar á vinnu
OECD, fræðimanna, samkeppnisyfirvalda í ýmsum aðildarlanda OECD og fyrri
rannsóknum á efnahagslegum áhrifum samkeppniseftirlits. Einnig er byggt á
þeirri aðferðafræði sem samkeppnisdeild framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins
notast við í sambærilegri greiningu, en þar eru leiðbeiningar OECD einnig
lagðar til grundvallar.

Grunnforsenda leiðbeininga OECD er sú að brot fyrirtækja á
samkeppnislögum eða samrunar sem raska samkeppni leiði að jafnaði til hærra
verðs og lakari gæða á viðkomandi markaði, heldur en á markaði þar sem
samkeppni nýtur við. Með íhlutun sinni koma samkeppnisyfirvöld í veg fyrir að
hærra verð og lakari gæði til viðskiptavina á viðkomandi markaði sé viðvarandi.
Reiknaður ábati er því mat á þeim skaða sem viðskiptavinir hefðu orðið fyrir ef
ekki hefði komið til íhlutunar samkeppnisyfirvalda. Viðskiptavinir geta hvort
sem er verið neytendur eða önnur fyrirtæki. Greiningin miðar þó ekki að því að
leggja heildarmat á þjóðhagslegan ávinning af samkeppniseftirliti. Ekki er
tekið tillit til margvíslegra jákvæðra áhrifa sem virk samkeppni getur haft,
t.a.m. aukinnar nýsköpunar og aukinnar þjóðhagslegrar hagkvæmni efnahagslífs.
Þá er ekki horft til taps fyrirtækja sem verða af viðbótartekjum vegna þess að
háttsemi sem fer gegn samkeppnislögum er stöðvuð. Benda rannsóknir á áhrifum
samkeppnislagabrota til þess að þær forsendur sem stuðst er við séu varfærnar,
sbr. skýrslu nr. 3/2024.

Í fjármálaáætlun síðustu ára er gerð grein fyrir
mælikvörðum og markmiðum um ávinning virkrar samkeppni. Allt frá árinu 2018
hefur einn af mælikvörðunum á því málefnasviði sem Samkeppniseftirlitið heyrir
undir, Markaðseftirlit og neytendamál,
stuðst við aðferðafræði af þessu tagi. Þannig hefur verið stefnt af því að
reiknaður árlegur ábati af ákvörðunum Samkeppniseftirlitsins á undanliðnum 10
árum, sem hlutfall af vergri landsframleiðslu, nemi að meðaltali 0,5%.

Í stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar
frá júlí 2022 á störfum Samkeppniseftirlitsins var m.a. lögð áhersla á ábatamat
af þessu tagi og þeim tilmælum beint til eftirlitsins að nýta reglubundið mat á
ábata af starfsemi sinni við skilgreiningu áherslna, markmiða og árangursmælikvarða
til framtíðar.


Fylgigögn:
Rit nr. 3/2024,
Reiknaður ábati vegna íhlutunar Samkeppniseftirlitsins, lýsing á aðferðafræði
og forsendum.
Rit nr. 4/2024,
Reiknaður ábati vegna íhlutunar Samkeppniseftirlitsins 2014-2023.
Minnisblað Jóns Þórs Sturlusonar um ábatamat
Samkeppniseftirlitsins 2023, dags. 27. maí 2024.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir

Eftirlit nauðsynlegt á fákeppnismarkaði

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, sagði í sjónvarpsfréttum RÚV að umfang eftirlits með því hvort lækkun á eldsneytisverði skili s...
  • 4. maí 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samkeppniseftirlitinu falið að fylgjast með verðlagningu á eldsneyti

Ný lög um breytingar á lögum um virðisaukaskatt og samkeppnislögum , voru samþykkt á Alþingi í gær 29. apríl. Þau fela í sér tímabundna lækkun á virði...
  • 30. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

„Gríðarlegir hagsmunir fyrir íslenskt samfélag að það sé samkeppni á fjármálamarkaði“

Viðræður Arion banka og Kvika banka um mögulegan samruna stöðvuðust án þess að til formlegrar niðurstöðu kæmi hjá Samkeppniseftirlitinu. Þetta kom fra...
  • 27. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.