Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Athugun á yfirráðum í Brimi

8. maí 2020
snowcap mountain

Vegna umfjöllunar í fjölmiðlum um athugun Samkeppniseftirlitsins á yfirráðum í Brimi telur eftirlitið rétt, í þágu upplýstrar umræðu, að taka eftirfarandi fram:

  • Við úrlausn samrunamála geta vaknað spurningar um hvort stofnast hafi til yfirráða í tilteknu fyrirtæki. Ef aðili með yfirráð í einu fyrirtæki nær yfirráðum í öðru fyrirtæki telst samruni hafa átt sér stað í skilningi samkeppnislaga. Ef velta viðkomandi fyrirtækja uppfyllir tiltekin fjárhæðamörk kveða samkeppnislög á um að tilkynna beri Samkeppniseftirlitinu um samrunann áður en hann kemur til framkvæmda, svo eftirlitið geti metið hvort samruninn skaði samkeppni og kalli á íhlutun í samræmi við samkeppnislög.
  • Í samkeppnisrétti miðar athugun á yfirráðum í einföldu máli að því að komast til botns í því hver eða hverjir geta í reynd haft afgerandi áhrif á ákvarðanir og viðskiptastefnu fyrirtækis. Matið ræðst því t.d. ekki af tilteknum eignarhlutföllum einum og sér, heldur geta ýmis önnur atriði haft áhrif á matið, s.s. samningsskuldbindingar, mæting á hluthafafundi, sameiginleg viðskiptasaga, fjölskyldutengsl og fleira sem dregur fram hvar yfirráð liggja í reynd.
  • Til athugunar er nú hvort stofnast hafi til yfirráða í Brimi, sem tilkynna hefði átt lögum samkvæmt til Samkeppniseftirlitsins áður en þau komust til framkvæmda. Nánar tiltekið er eftirlitið að taka afstöðu til þess hvort Útgerðarfélag Reykjavíkur hf., Fiskitangi ehf., KG Fiskverkun ehf. og FISK-Seafood eignarhaldsfélag (í dag RE-13 ehf.) hafi myndað yfirráð í Brimi. Fyrir eftirlitinu liggur að afla frekari gagna og gefa öllum aðilum málsins ítrasta tækifæri á að koma skýringum og sjónarmiðum á framfæri. Ekki er hægt að fullyrða um endanlega niðurstöðu málsins fyrr en að undangenginni þessari rannsókn.
  • Athugunin hófst sem liður í rannsókn á kaupum Brims á Fiskvinnslunni Kambi hf. og Grábrók ehf. Tilkynnti Brim um þau kaup og tók eftirlitið afstöðu til málsins innan lögbundinna tímafresta. Í málinu færði Samkeppniseftirlitið rök fyrir yfirráðum Útgerðarfélags Reykjavíkur og tengdra aðila í Brimi. Mótmæltu samrunaaðilar því frummati eftirlitsins. Til þess að geta tekið afstöðu til kaupanna á Kambi og Grábrók skoðaði eftirlitið hvort þau myndu hafa skaðleg áhrif á samkeppni ef umrædd yfirráð í Brimi væru lögð til grundvallar. Niðurstaðan varð sú að svo væri ekki og því ekki ástæða til að gera athugasemdir við kaupin, hvort sem yfirráðin væru talin vera til staðar eða ekki, sbr. nýlega ákvörðun nr. 19/2020.
  • Yfirráð í Brimi komu einnig til skoðunar í tengslum við kaup Brims (þá HB Granda) á Ögurvík á árinu 2018, sbr. ákvörðun nr. 30/2018. Á þeim tíma þótti ekki forsenda til þess, á grundvelli fyrirliggjandi gagna og gegn eindreginni neitun félaganna, að slá því föstu að Útgerðarfélag Reykjavíkur hefði öðlast yfirráð í Brimi. Hins vegar var tekið fram að málið yrði hugsanlega tekið upp að nýju ef frekari vísbendingar kæmu fram sem bentu til yfirráða. Slíkar vísbendingar hafa nú komið fram.
  • Komist Samkeppniseftirlitið að þeirri niðurstöðu í athugun sinni að stofnast hafi til framangreindra yfirráða í Brimi þarf ennfremur að taka afstöðu til þess hvort umræddum aðilum hafi borið að tilkynna um yfirráðin í sérstöku samrunamáli og hvort vanræksla á því kalli á viðurlög samkvæmt samkeppnislögum en lögbundin tilkynningarskylda fyrirtækja á breytingum á yfirráðum er mikilvægur þáttur í samrunaeftirliti Samkeppniseftirlitsins. Ef niðurstaðan verður sú að til tilkynningarskylds samruna hafi stofnast þarf síðan að taka efnislega afstöðu til hans.
  • Tilgangur samrunareglna samkeppnislaga er m.a. að vinna gegn skaðlegri samþjöppun á mörkuðum, sem skaðað getur hagsmuni viðskiptavina, keppinauta og almennings. Þannig getur samkeppni t.d. skaðast með því að markaðsráðandi staða verði til eða styrkist. Sjávarútvegsfyrirtæki starfa á fjölþættum mörkuðum, þ.m.t. mörkuðum fyrir viðskipti með aflaheimildir, tilteknar tegundir veiða, vinnslu sjávarafla, fiskmarkaði, útflutningi afurða o.s.frv. Samþjöppun á ýmsum þessara markaða getur haft skaðlegar afleiðingar fyrir íslenskan almenning og efnahagslífið.
  • Vegna umfjöllunar í Kastljósi þann 7. maí sl. vill Samkeppniseftirlitið taka fram að það hefur ekki krafist þess að Guðmundur Kristjánsson láti af starfi sem forstjóri Brims. Fyrir Samkeppniseftirlitinu liggur að taka afstöðu til þess hvort breyting hafi orðið á yfirráðum í Brimi, og ef svo er, hver áhrif þeirra eru á samkeppni.
  • Efnisreglur samkeppnislaga um eftirlit með samrunum eru sniðnar að samrunareglum sem gilda á Evrópska efnahagssvæðinu. Um mat á yfirráðum og tilhögun rannsókna sækir Samkeppniseftirlitið í

    margreynd fordæmi annarra samkeppnisyfirvalda á svæðinu.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.