Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Búvörulög – viðbrögð við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur

19. nóvember 2024

Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp í gær, 18. nóvember, er komist að þeirri niðurstöðu að nýlegar undanþágur frá samkeppnislögum, sem heimila kjötafurðastöðvum að sameinast og hafa tiltekið samráð sín á milli, stríði gegn stjórnskipunarlögum og hafi því ekki lagagildi.

Kjötafurðastöðvum ritað bréf

Í tilefni af dóminum hefur Samkeppniseftirlitið í dag ritað kjötafurðastöðvum og samtökum þeirra bréf. Í þeim er vakin athygli á því að samkvæmt dómi héraðsdóms samræmdust undanþáguheimildir búvörulaga ekki stjórnskipunarlögum og öðluðust því ekki lagagildi. Vegna þessa gildi samkeppnislög því fullum fetum um samstarf og samruna kjötafurðastöðva. Hafi kjötafurðastöðvar því ekki notið neinnar undanþágu frá ákvæðum samkeppnislaga.

Jafnframt er vakin athygli á því samkeppnislög banna samninga og samþykktir milli fyrirtækja sem raska samkeppni, sem og samkeppnishömlur af hálfu samtaka fyrirtækja. Einnig er vakin athygli á því að tilkynna þarf Samkeppniseftirlitinu fyrirfram um samruna fyrirtækja yfir tilteknum veltumörkum. Þá leggja samkeppnislög bann við því að samruni komi til framkvæmda á meðan Samkeppniseftirlitið fjallar um hann.

Í bréfunum er eftirfarandi beint til kjötafurðastöðva:

  • Að stöðva þegar í stað hvers konar aðgerðir eða háttsemi sem farið getur gegn samkeppnislögum og stofnast hefur til á grundvelli umræddra undanþáguheimilda.
  • Óskað er eftir upplýsingum hvort viðkomandi fyrirtæki hafi verið skilgreint sem framleiðendafélag í skilningi búvörulaga, en samkvæmt lagabreytingunum var það forsenda þess að kjötafurðastöðvar gætu nýtt sér undanþáguheimildirnar.
  • Hafi viðkomandi kjötafurðastöð ráðist í samruna eða samstarf á grundvelli undanþáguheimildanna er lagt fyrir fyrirtækið að varðveita allar upplýsingar og gögn sem varpa ljósi á þá háttsemi sem í hlut á. Í því sambandi er vakin athygli á því að það getur varðað fyrirtæki stjórnvaldssektum og einstaklinga refsingu að koma undan eða gera á annan hátt ónothæf gögn sem hafa þýðingu í síðari rannsóknum.

Kjötafurðastöðvum er jafnframt gefinn kostur á að koma á framfæri sjónarmiðum sem nýtast kunna við athugun á því hvernig bregðast skuli við dómi héraðsdóms. Frestur til að svara er gefinn til mánudagsins 25. nóvember næstkomandi.

Afrit af texta bréfanna er aðgengilegt hér .

Hagsmunaaðilum gefinn kostur á að koma að sjónarmiðum

Með tilkynningu þessari vill Samkeppniseftirlitið gefa öllum hagsmunaaðilum og öðrum sem þess óska kost á því að koma á framfæri sjónarmiðum sem nýtast kunna við frekari athugun á því hvernig Samkeppniseftirlitið skuli bregðast við dómi héraðsdóms. Æskilegt er að slík sjónarmið berist eigi síðar en mánudaginn 25. nóvember nk. á netfangið gogn@samkeppni.is

Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur, kveðinn upp 18. nóvember 2024, er aðgengilegur hér.

Fyrri frétt Samkeppniseftirlitsins vegna dómsins er aðgengileg hér.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og greinar

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

  • 11. maí 2026
  • Fréttir

Eftirlit nauðsynlegt á fákeppnismarkaði

  • 4. maí 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samkeppniseftirlitinu falið að fylgjast með verðlagningu á eldsneyti

  • 30. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

„Gríðarlegir hagsmunir fyrir íslenskt samfélag að það sé samkeppni á fjármálamarkaði“

  • 27. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Sumarstarf fyrir hagfræðinema hjá SKE

  • 22. apríl 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.