Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

CAP viðmiðin hafa gefið góða raun

1. október 2021

Rúmlega tvö ár eru liðin síðan Alþjóðasamtök
samkeppniseftirlita (International Competition Network, ICN) innleiddu
svokölluð CAP viðmið. Þeim er ætlað að tryggja vandaðar rannsóknir og forðast
einsleitni í meðferð mála en Samkeppniseftirlitið uppfyllir skilyrðin og var á
meðal stofnaðila þeirra árið 2019. Samkeppnisyfirvöld í Ástralíu, Bandaríkjunum
og Þýskalandi hafa veitt stýrihópnum sameiginlega formennsku frá upphafi en
kosið er um stjórnarformennsku til þriggja ára í senn. Í dag eru 73 aðilar að
CAP viðmiðunum.

Icn-logo

Eftir tvær vikur hefst ársfundur ICN í Búdapest í
Ungverjalandi en á dögunum var gefin út skýrsla um CAP viðmiðin sem voru rædd
sérstaklega á síðasta ársfundi samtakanna, í október 2020. Í skýrslunni er vitnað í Guðmund Hauk
Guðmundsson, verkefnastjóra og alþjóðafulltrúa hjá Samkeppniseftirlitinu, sem
sat pallborðsumræður um CAP verkefnið á síðasta ársfundi ásamt fulltrúum samkeppnisyfirvalda í
Japan, Kanada, Mexíkó og Kenía. Þeir voru sammála um að CAP viðmiðin hafi gefið
góða raun hingað til.

GudmundurHaukur_1633097708218„CAP viðmiðin veita í raun einstaka yfirsýn yfir meðferð
samkeppnismála á Íslandi. Við gerð viðmiðanna gafst frábært tækifæri til að fara
yfir það hvernig best sé að ná fram þeim markmiðum sem CAP viðmiðin leggja
áherslu á auk þess sem yfirsýn næst yfir þær kvaðir sem á eftirlitinu hvíla og
samspils ýmissa íslenskra lagaákvæða. Þá gafst okkur tækifæri til að eiga
samtal við aðila sem voru áhugasamir um virkni málsmeðferðarinnar og vildu vita
meira um viðmið og verkferla eftirlitsins,“ er haft eftir Guðmundi í skýrslunni sem má lesa hér.

CAP viðmiðin eru í stöðugri endurskoðun en þau veita gott
tækifæri til að bera saman verkferla og viðmið hjá samkeppniseftirlitum um
allan heim. Hér má nálgast CAP viðmið Samkeppniseftirlitsins á ensku.

Samkeppniseftirlitið leggur mikið upp úr alþjóðlegu
samstarfi. Markmiðið með því er að efla tengsl samkeppnisyfirvalda innbyrðis
með það fyrir augum að auka þekkingu þeirra sem starfa við rekstur
samkeppnismála auk þess að rannsaka og bregðast við samkeppnislegum álitaefnum
á tilteknum mörkuðum.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.