Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Ferðaskrifstofa Íslands dregur til baka samrunatilkynningu vegna kaupa félagsins á rekstri Heimsferða og óskar frekari viðræðna um möguleg skilyrði

2. september 2021

Samkeppniseftirlitið hefur að undanförnu haft til ítarlegrar
rannsóknar fyrirhuguð kaup Ferðaskrifstofu Íslands (FÍ) á rekstri Heimsferða.
Rannsóknin var á lokastigi en FÍ hefur nú afturkallað samrunatilkynningu sína.

Felur afturköllunin í sér að umræddu máli er lokið án
ákvörðunar og að samruni FÍ og Heimsferða getur ekki komið til framkvæmda að
óbreyttu.

Samrunaaðilar hafa hins vegar upplýst Samkeppniseftirlitið
um að þeir hyggist tilkynna aftur um samrunann á breyttum grunni og leggja til
skilyrði sem eytt geta mögulegum samkeppnishindrunum vegna samrunans. Um er að
ræða tillögur sem ekki voru settar fram við fyrri meðferð málsins og hefur eftirlitinu
því ekki gefist tækifæri til þess að taka afstöðu til þeirra.

Bakgrunnsupplýsingar

Samruna yfir tilteknum veltumörkum ber að tilkynna
Samkeppniseftirlitinu og ber eftirlitinu að taka afstöðu til þeirra innan
tiltekinna lögbundinna tímafresta. Samrunatilkynning vegna þessa máls barst
Samkeppniseftirlitinu 21. janúar 2021. Hefur rannsókn eftirlitsins verið
umfangsmikil, en vegna sjónarmiða samrunaaðila þurfti m.a. að taka
skilgreiningu markaða í málinu til ítarlegrar rannsóknar, s.s. með því að
framkvæma könnun á meðal viðskiptavina félaganna.

Samkeppniseftirlitið birti samrunaaðilum frummat sitt í
andmælaskjali þann 10. júní 2021. Þar var samrunaaðilum gerð grein fyrir því
frummati Samkeppniseftirlitsins að samruni FÍ og Heimsferða væri skaðlegur
samkeppni samkvæmt 17. gr. c samkeppnislaga nr. 44/2005. Var samrunaaðilum
gefið færi á að tjá sig um efni andmælaskjalsins og setja fram hugmyndir um
möguleg skilyrði.

Samrunaaðilar andmæltu frummati Samkeppniseftirlitsins, en
settu jafnframt fram tillögur að skilyrðum sem Samkeppniseftirlitið mat
ófullnægjandi, að undangenginni rannsókn.

Með því að afturkalla samrunatilkynningu hafa samrunaaðilar
komið í veg fyrir mögulega íhlutun af hálfu Samkeppniseftirlitsins með
ógildingu samruna. Þess í stað hyggjast samrunaaðilar láta reyna á hvort unnt
sé að heimila samrunann á grundvelli nýrra tillagna að skilyrðum sem eytt geta
mögulegum samkeppnishindrunum. Verður meðferð þess máls hraðað eins og kostur
er.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.