Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Héraðsdómur Reykjavíkur staðfestir úrskurð um ógildingu samruna á markaði fyrir myndgreiningarþjónustu

5. desember 2022

Þann 11. mars 2021 staðfesti áfrýjunarnefnd samkeppnismála
ákvörðun Samkeppniseftirlitsins þar sem ógiltur var samruni Íslenskrar myndgreiningar
ehf. og Læknisfræðilegrar myndgreiningar ehf. Samrunaaðilar skutu úrskurði
áfrýjunarnefndar samkeppnismála til dómstóla og með dómi sínum í dag staðfesti
Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurð áfrýjunarnefndar.

Starfsemi samrunaaðila felst í því að veita
læknisfræðilega myndgreiningarþjónustu, en undir hana falla m.a.
tölvusneiðmyndarannsóknir, röntgenrannsóknir, ómun, segulómun og
skyggnirannsóknir. Starfsemin hefur mikla þýðingu fyrir heilbrigðisþjónustu á
landinu. Samkeppnisröskun á þessu sviði getur verið til þess fallin að draga úr
gæðum og hækka kostnað við heilbrigðisþjónustu.

Með samrunanum hefði keppinautum á markaðnum fækkað úr
þremur í tvo og samanlögð markaðshlutdeild samrunaaðila orðið á bilinu 80-100%,
eftir því um hvaða þjónustuþætti er að ræða.

Í málinu var deilt um nokkur atriði sem rétt er að
víkja nánar að:

Samrunaaðilar byggðu í fyrsta lagi á því að samrunareglur
samkeppnislaga næðu ekki til starfsemi samrunaaðila, sem grundvallast að
langmestu leyti á samningi við Sjúkratryggingar Íslands um heilbrigðisþjónustu.
Í dóminum er staðfest sú niðurstaða Samkeppniseftirlitsins og áfrýjunarnefndar að
samrunareglur samkeppnislaga eigi við um samruna fyrirtækja á þessu sviði, enda
sé sérstaklega tekið fram í lögskýringargögnum með lögum um sjúkratryggingar að
samkeppnislögum sé ætlað að gilda um markaðshegðun viðsemjenda Sjúkratrygginga
Íslands.

Samrunaaðilar byggðu í öðru lagi á því að
Samkeppniseftirlitið hefði ekki tekið ákvörðun í málinu innan lögmæltra fresta
og því hafi skort heimild til að ógilda samrunann. Var þessi afstaða
samrunaaðila einkum reist á því að á meðan Samkeppniseftirlitið hafði
stjórnsýslumálið til meðferðar hefðu verið gerðar breytingar á ákvæðum samkeppnislaga
um fresti til að rannsaka samruna. Héraðsdómur féllst ekki á þetta.

Samrunaaðilar byggðu í þriðja lagi á því að markaður
málsins væri ekki rétt skilgreindur. Í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins var lagt
til grundvallar að landfræðilegur markaður málsins væri höfuðborgarsvæðið en
samrunaaðilar voru því ósammála og byggðu á því að landið allt væri einn
markaður. Þá byggðu samrunaaðilar á því að myndgreiningarþjónusta sem veitt er
á sjúkrahúsum ætti að teljast til markaða málsins. Áfrýjunarnefnd féllst á rök
Samkeppniseftirlitsins að þessu leyti, einkum með vísan til þess að notendur
þjónustunnar sækja almennt ekki þjónustuna á milli landssvæða og að takmörkuð
staðganga væri á milli myndgreiningarþjónustu sem er veitt innan og utan
sjúkrahúsa. Héraðsdómur var þessu sammála.

Héraðsdómur staðfesti að lokum það mat
samkeppnisyfirvalda að við samrunann hefði markaðsráðandi staða myndast eða
styrkst, eða samkeppni raskast að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Hefði það
haft skaðleg áhrif á þá samkeppni sem fyrir er á hinum skilgreinda markaði
málsins. Í því samhengi var litið til fækkunar keppinauta úr þremur í tvo og
hárrar markaðshlutdeildar samrunaaðila. 

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir

Eftirlit nauðsynlegt á fákeppnismarkaði

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, sagði í sjónvarpsfréttum RÚV að umfang eftirlits með því hvort lækkun á eldsneytisverði skili s...
  • 4. maí 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samkeppniseftirlitinu falið að fylgjast með verðlagningu á eldsneyti

Ný lög um breytingar á lögum um virðisaukaskatt og samkeppnislögum , voru samþykkt á Alþingi í gær 29. apríl. Þau fela í sér tímabundna lækkun á virði...
  • 30. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

„Gríðarlegir hagsmunir fyrir íslenskt samfélag að það sé samkeppni á fjármálamarkaði“

Viðræður Arion banka og Kvika banka um mögulegan samruna stöðvuðust án þess að til formlegrar niðurstöðu kæmi hjá Samkeppniseftirlitinu. Þetta kom fra...
  • 27. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.