Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Kaup Árvakurs hf. og 365 miðla hf. á Póstmiðstöðinni ehf. samþykkt með skilyrðum

19. desember 2018
snowcap mountain

Samkeppniseftirlitið hefur í dag heimilað kaup Árvakurs hf. og 365 miðla hf. á Póstmiðstöðinni ehf. Samruninn er háður skilyrðum sem Samkeppniseftirlitið og samrunaaðilar hafa gert sátt um. Þannig skuldbinda aðilar sig til aðgerða til þess að bregðast við þeirri röskun á samkeppni sem samruninn myndi annars leiða til.

Árvakur er útgáfufélag Morgunblaðsins og Torg ehf., dótturfélag 365 miðla, er útgáfufélag Fréttablaðsins. Um er að ræða stærstu dagblöð landsins. Póstmiðstöðin er félag sem starfar á sviði dreifingar, m.a. dagblaða og fjölpósts. Póstmiðstöðin er dreifingaraðili Fréttablaðsins og annarra miðla. Landsprent ehf. er dótturfélag Árvakurs og hefur m.a. sinnt dreifingu Morgunblaðsins og annarra miðla. Með samrunanum hyggjast samrunaaðilar sameina dreifikerfi sín fyrir dagblöð, tímarit og fjölpóst undir fyrirtækinu Póstmiðstöðinni sem þeir hyggjast reka sem dótturfélag.

Samkeppniseftirlitið rannsakaði samrunann á grundvelli samrunareglna bæði samkeppnislaga og fjölmiðlalaga en samrunareglum síðarnefndu laganna er ætlað að vernda fjölbreytni og fjölræði í fjölmiðlun. Rannsókn samrunans leiddi í ljós að samruninn leiðir til mögulegrar hagræðingar í dreifingu sem mikilvæg kann að vera fyrir markaðinn fyrir útgáfu dagblaða, m.a. vegna kostnaðar við blaðadreifingu. Á hinn bóginn leiddi rannsóknin í ljós ákveðna hættu á því að samrunaaðilar gætu misbeitt stöðu sinni gagnvart keppinautum, t.a.m. með því að hefta aðgang þeirra að dreifikerfi Póstmiðstöðvarinnar og mismuna þeim í verðlagningu og gæðum þjónustunnar.

Þann 15. október sl. leitaði Samkeppniseftirlitið sjónarmiða markaðsaðila og almennings vegna tillögu samrunaaðila að skilyrðum. Í kjölfar umsagna sem bárust tóku skilyrðin ákveðnum breytingum sem ætlað er að styrkja efni og umgjörð þeirra.  

Líkt og áður sagði hefur Samkeppniseftirlitið nú sett samrunanum skilyrði sem ætlað er að bregðast við þeim vandamálum sem annars gætu leitt af honum. Meginefni sáttarinnar er eftirfarandi:

1.    Aðgangur og jafnræði: Póstmiðstöðinni verður óheimilt að útiloka aðila sem eru ótengdir samrunaaðilum frá viðskiptum vegna dreifingar á blöðum og prentefni. Skal Póstmiðstöðin verða við beiðni aðila um þjónustu nema málefnalegar ástæður mæli gegn því.

Póstmiðstöðin skal jafnframt gæta jafnræðis í verðlagningu og gæðum þjónustunnar gagnvart viðskiptavinum sínum.

2.    Almenn verðskrá: Póstmiðstöðin skal setja sér almenna verðskrá vegna dreifingar á blöðum og prentefni. Verðskráin skal gilda í viðskiptum Póstmiðstöðvarinnar við viðskiptamenn, þ. á m. Árvakur og 365 miðla.

3.    Aukin eftirspurn: Í fjórðu grein sáttarinnar segir að Póstmiðstöðin skuli leitast við að verða við ósk nýs aðila um þjónustu jafnvel þó viðskiptin kalli á verulegar breytingar, m.a. fjárfestingar, breytingar á núverandi dreifikerfi eða verulega aukningu starfsmanna.  

4.    Bann við samtvinnun þjónustu: Póstmiðstöðinni og eigendum hennar er óheimilt að gera það að skilyrði að viðskiptamenn Póstmiðstöðvarinnar kaupi jafnframt aðra þjónustu frá eigendum, s.s. prentþjónustu.

5.    Sjálfstæði stjórnenda og vernd trúnaðarupplýsinga: Framkvæmdastjóri og lykilstarfsmenn Póstmiðstöðvarinnar skulu vera sjálfstæðir í störfum sínum gagnvart Árvakri og 365 miðlum.

Jafnframt er í sáttinni kveðið á um aðgerðir til að vernda viðkvæmar viðskiptaupplýsingar viðskiptamanna Póstmiðstöðvarinnar.

Nálgast má sátt Samkeppniseftirlitsins við samrunaaðila hérna .    

Á næstunni mun Samkeppniseftirlitið birta fullbúna ákvörðun vegna málsins, en þar verður nánari grein gerð fyrir meðferð málsins, undirliggjandi rannsóknum og þeim aðgerðum sem framangreind sátt mælir fyrir um.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

„Fákeppni leiðir til þess að samkeppni slævist“

Gímaldið birti í liðinni viku hlaðvarpsþátt um hátt matvöruverð á Íslandi og samkeppni á dagvörumarkaði. Meðal viðmælenda var Páll Gunnar Pálsson, for...
  • 29. júní 2026
  • Fréttir

Sameiginleg yfirlýsing ECN um samruna

European Competition Network, (ECN), sem er samstarfsvettvangur evrópskra samkeppnisyfirvalda og framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, hefur birt same...
  • 26. júní 2026
  • Fréttir

Samrunamál í sumar, tafir og ný mál

Vegna sumarleyfa og mikilla anna við rekstur samrunamála sem nú eru til formlegrar meðferðar (þegar tilkynntir samrunar) er fyrirsjáanlegt að tafir ve...
  • 23. júní 2026
  • Fréttir

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...