Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Landsréttur staðfestir 480 m.kr. sekt á Mjólkursamsöluna vegna alvarlegra brota á samkeppnislögum

27. mars 2020
snowcap mountain

Með dómi Landsréttar, sem kveðinn var upp í dag, var staðfestur dómur Héraðsdóms Reykjavíkur um alvarleg brot Mjólkursamsölunnar (MS) á samkeppnislögum. Með dóminum hafnaði Landsréttur kröfu MS um að sekt vegna brotanna að fjárhæð 480 m. kr. yrði felld niður.

Héraðsdómur Reykjavíkur hafði fallist á kröfu Samkeppniseftirlitsins um að MS yrði gert að greiða sekt vegna þess að fyrirtækið hefði misnotað markaðsráðandi stöðu sína með því að selja keppinautum sínum grundvallarhráefni til framleiðslu mjólkurvara, þ.e. hrámjólk, á hærra verði en MS sjálft og tengdir aðilar (Kaupfélag Skagfirðinga (KS) og dótturfélag þess) þurftu að greiða. Héraðsdómur felldi því úr gildi þá niðurstöðu meirihluta áfrýjunarnefndar samkeppnismála að búvörulög hafi heimilað háttsemi fyrirtækisins.

MS skaut málinu Landsréttar. Í dómi Landsréttar, sem var kveðinn upp í dag, er því hafnað að ákvæði búvörulaga hafi heimilað MS að mismuna keppinautum sínum. Í dóminum er tekið fram að þau ákvæði búvörulaga sem MS hafi vísað til geti ekki með „nokkrum hætti“ undanskilið fyrirtækið frá banni samkeppnislaga við misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Í dóminum er staðfest að MS hafi beitt smáa keppinauta sína samkeppnishamlandi mismunun og er tekið fram að þetta brot á 11. gr. samkeppnislaga hafi verið „alvarlegt auk þess sem það stóð lengi og var augljóslega mjög til þess fallið að raska samkeppnistöðu.“ Þá hafi það lotið „að mikilvægri neysluvöru og snerti á þann hátt allan almenning í landinu.“

Með dómi Landsréttar er jafnframt staðfest að MS hafi brotið gegn skyldu sinni til að veita upplýsingar samkvæmt samkeppnislögum með því að halda mikilvægu gagni frá Samkeppniseftirlitinu. Í dómnum er tekið fram að MS, sem sé markaðsráðandi fyrirtæki, hafi mátt vera fullljóst að með háttsemi sinni væri fyrirtækið að torvelda rannsókn málsins.

Dómur Landsréttar hefur mikla þýðingu fyrir starfsumhverfi í framleiðslu mjólkurafurða hér á landi og styrkir stöðu bænda og neytenda.

 

Bakgrunnsupplýsingar:

Í júlí 2016 komst Samkeppniseftirlitið að þeirri niðurstöðu að Mjólkursamsalan (MS) hefði með alvarlegum hætti brotið gegn banni 11. gr. samkeppnislaga við misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Nánar tiltekið hefði MS misnotað markaðsráðandi stöðu sína með því að selja keppinautum sínum grundvallarhráefni til framleiðslu á mjólkurvörum, þ.e. hrámjólk, á óeðlilega háu verði á sama tíma og MS sjálft og tengdir aðilar (Kaupfélag Skagfirðinga (KS) og dótturfélag þess) fengu sama hráefni á mun lægra verði, og að auki undir kostnaðarverði. Niðurstaða eftirlitsins var að þetta hefði veitt MS og tengdum aðilum verulegt samkeppnisforskot gagnvart keppinautum. Með þessu móti hefði geta slíkra aðila til að keppa við MS og tengd félög verið skert með alvarlegum hætti, en á endanum væri það til þess fallið að skaða hagsmuni neytenda og bænda.

MS skaut ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem kvað upp sinn úrskurð 18. nóvember 2016. Meirihluti nefndarinnar komst m.a. að þeirri niðurstöðu að undanþáguákvæði búvörulaga hefðu vikið banni samkeppnislaga við misnotkun á markaðsráðandi stöðu til hliðar. Af þessu leiddi að sekt MS vegna brota á 11. gr. samkeppnislaga var felld úr gildi. Á hinn bóginn staðfesti nefndin að MS hefði framið alvarlegt brot á upplýsingaskyldu samkeppnislaga og að fyrirtækinu bæri að greiða 40.000.000 kr. sekt vegna þess.

Eftir skoðun á forsendum meirihluta áfrýjunarnefndar taldi Samkeppniseftirlitið að því bæri að bera framangreindan úrskurð undir dómstóla og stefndi MS fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur til þess að þola ógildingu á framangreindri niðurstöðu meirihluta áfrýjunarnefndar um samspil búvörulaga og samkeppnislaga. Miðaði sú málshöfðun að því að fá úr því skorið hvort bann samkeppnislaga við misnotkun á markaðsráðandi stöðu tæki að fullu til MS. Jafnframt yrði fengin fullnaðarúrlausn um hvort að fyrirtækið skyldi sæta fullri ábyrgð vegna þeirrar háttsemi sem fjallað var um í málinu og Samkeppniseftirlitið hefði metið sem alvarleg brot gegn minni keppinautum.

Með lögum, sem tóku gildi árið 2011, var Samkeppniseftirlitinu veitt heimild til að bera úrskurði áfrýjunarnefndar undir dómstóla, en fyrir gildistöku laganna gátu aðeins einstök fyrirtæki höfðað slík mál. Tilgangur þessarar lagabreytingar var að gera Samkeppniseftirlitinu betur kleift að „vernda þá lögvörðu almannahagsmuni sem felast í virkri samkeppni“. Taldi löggjafinn mikilvægt að Samkeppniseftirlitið gæti borið „stór og mikilvæg mál“ sem varða hagsmuni neytenda undir dómstóla. Með þessu móti væri stuðlað að jafnræði á milli gæslu almannahagsmuna og einkahagsmuna fyrirtækja fyrir dómstólum í samkeppnismálum.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.