Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Landsréttur staðfestir niðurstöðu héraðsdóms í máli er varðar háttsemi Símans

16. febrúar 2024
snowcap mountain

Með dómi Landsréttar uppkveðnum í
dag var staðfest sú niðurstaða héraðsdóms að fella úr gildi úrskurð
áfrýjunarnefndar samkeppnismála þar sem Síminn var sektaður fyrir að brjóta
gegn sátt sem fyrirtækið hafði gert við Samkeppniseftirlitið.

Með sáttinni hafði Síminn
skuldbundið sig til þess annars vegar að að gera það ekki að skilyrði fyrir
kaupum á fjarskiptaþjónustu fyrirtækisins að línuleg sjónvarps­þjónusta fylgdi
með í kaupunum og hins vegar að tvinna ekki saman í sölu fjarskiptaþjónustu
fyrirtækisins og línulega sjónvarpsþjónustu gegn verði eða viðskiptakjörum sem
jafna mætti til slíks skilyrðis.

Upphaf málsins má rekja til þess
að Vodafone (Sýn hf.) kvartaði yfir háttsemi Símans, ásamt því að Nova gerði
athugasemdir við háttsemina. Snérist háttsemin einkum um mikinn verðmun og ólík
viðskiptakjör við sölu á sjónvarpsstöðinni Símanum Sport, þar sem leikir í
ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eru sýndir, eftir því hvort áskriftin var
boðin innan Heimilispakka Símans (með fjarskiptaþjónustu fyrirtækisins) eða
einn og sér í stakri áskrift. Með ákvörðun Samkeppniseftirlitsins var háttsemi
Símans talin brjóta gegn skilyrðum tveggja sátta sem fyrirtækið hafði gert við
eftirlitið og fyrirtækinu gert að greiða sekt í ríkisjóð.

Með úrskurði áfrýjunarnefndar
voru brot Símans á annarri sáttinni staðfest, en möguleg brot á hinni sáttinni
vísað til nýrrar meðferðar Samkeppniseftirlitsins.

Í málinu reynir á þýðingarmikil
atriði í framkvæmd á samkeppnislaga, meðal annars hvort skilyrði samtvinnunar
eða vöndlunar viðskipta séu til staðar í skilningi samkeppnisréttarins. Einnig
reynir á það hvort fyrirtæki sem gerir sátt við Samkeppniseftirlitið þarf að
vera markaðsráðandi svo skilyrði sáttar gildi um það. Í dómi Landsréttar er
komist að þeirri niðurstöðu varðandi aðra sáttina að Síminn hafi þurft að vera
í markaðsráðandi stöðu svo skilyrði hennar eigi við. Í málinu byggði
Samkeppniseftirlitið á því að slík niðurstaða samræmdist hvorki innlendri réttarframkvæmd
né réttarframkvæmd í EES-/ESB-samkeppnisrétti.

Samkeppniseftirlitið hefur nú til
skoðunar hvort leitaði verði eftir leyfi Hæstaréttar til að áfrýja dóminum.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir

Eftirlit nauðsynlegt á fákeppnismarkaði

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, sagði í sjónvarpsfréttum RÚV að umfang eftirlits með því hvort lækkun á eldsneytisverði skili s...
  • 4. maí 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samkeppniseftirlitinu falið að fylgjast með verðlagningu á eldsneyti

Ný lög um breytingar á lögum um virðisaukaskatt og samkeppnislögum , voru samþykkt á Alþingi í gær 29. apríl. Þau fela í sér tímabundna lækkun á virði...
  • 30. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

„Gríðarlegir hagsmunir fyrir íslenskt samfélag að það sé samkeppni á fjármálamarkaði“

Viðræður Arion banka og Kvika banka um mögulegan samruna stöðvuðust án þess að til formlegrar niðurstöðu kæmi hjá Samkeppniseftirlitinu. Þetta kom fra...
  • 27. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.