Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Leiðrétting á efni fréttar Viðskiptablaðsins þann 18. júlí síðastliðin

23. júlí 2019
snowcap mountain

Í Viðskiptablaðinu þann 18. júlí sl. er fjallað um kvartanir Inter, samtaka aðila sem veita internetþjónusu, í garð Símans. Er haft eftir forsvarsmönnum samtakanna að þeir furði sig á því hvað það taki langan tíma hjá Samkeppniseftirlitinu að fá niðurstöðu í málið. Er því haldið fram að Samkeppniseftirlitið virði ekki málhraðareglu stjórnsýslulaga og að „súrrealískt“ sé að eiga í samskiptum við stofnun sem svari ekki erindum.

Þar sem framangreind umfjöllun er ekki sannleikanum samkvæm er óhjákvæmilegt að taka eftirfarandi fram:

– Kvörtun sú sem gerð er að umtalsefni í fréttinni barst Samkeppniseftirlitinu í febrúar 2018. Í framhaldinu var kvörtunin tekin til skoðunar og leitað upplýsinga og sjónarmiða vegna hennar.

– Í byrjun maí 2018 var aðilum kynnt það frummat Samkeppniseftirlitsins að ekki væru nægar forsendur til að ætla að umrædd háttsemi Símans færi í bága við samkeppnislög. Var aðilum boðið að tjá sig um það frummat.

– Að fengnum frekari upplýsingum og sjónarmiðum aðila á viðkomandi mörkuðum ákvað Samkeppniseftirlitið að taka umrædd álitaefni að nýju til frekari skoðunar. Var viðkomandi aðilum, þar á meðal fyrirtækjum á vettvangi Inter, gerð grein fyrir þessu með ítarlegum hætti í byrjun apríl 2019. Jafnframt var þeim boðið að koma frekari sjónarmiðum og upplýsingum á framfæri.

– Sem lið í ákvörðunartöku um frekari athugun óskaði Samkeppniseftirlitið eftir tilteknum tölulegum upplýsingum frá m.a. aðildarfyrirtækjum Inter. Síðustu gögn frá aðildarfyrirtækjum Inter bárust ekki fyrr en þann 18. júní síðastliðin, en Samkeppniseftirlitið þurfti ítrekað að ganga eftir upplýsingunum. Í framhaldinu hefur Samkeppniseftirlitið verið í samskiptum við forsvarsmann Inter og upplýst hann um stöðu málsins.

Framangreind gagnrýni forvarsmanna Inter, í garð Samkeppniseftirlitsins á því ekki við rök að styðjast. Þannig hafa erindi kvartenda verið tekin til skoðunar, þeim ítrekað verið gerð grein fyrir framgangi þeirra hjá eftirlitinu og eftirlitið átt í tíðum samskiptum við þá. Þá hafa orðið tafir á gagnaskilum af þeirra hálfu.

Rétt er jafnframt að vekja athygli á að aðilum máls er jafnan heimilt, telji þeir ástæðu til, að kæra drátt á afgreiðslu máls til áfrýjunarnefndar samkeppnismála, sbr. 9. gr. stjórnsýslulaga. Aðildarfyrirtæki Inter hafa ekki nýtt sér þennan rétt sinn í málinu.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.