Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Mjólkursamsalan dæmd til að greiða 480.000.000 kr. í sekt vegna alvarlegra brota á samkeppnislögum

30. maí 2018
snowcap mountain

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur í dag dæmt Mjólkursamsöluna (MS) til að greiða sekt að fjárhæð 440.000.000 kr. vegna misnotkunar á markaðsráðandi stöðu, með því að selja keppinautum sínum grundvallarhráefni til framleiðslu á mjólkurvörum, þ.e. hrámjólk, á hærra verði en MS sjálft og tengdir aðilar (Kaupfélag Skagfirðinga (KS) og dótturfélag þess) þurftu að greiða.

Við fjárhæð sektar lítur dómurinn til þess að brot MS hafi verið alvarlegt og staðið í langan tíma. Hafi brotið varðað vinnslu mikilvægrar neysluvöru og hafi aðgerðir MS verið fallnar til að skaða samkeppni og neytendur með alvarlegum hætti. Þá var litið til þess að um ítrekað brot var að ræða. Í dóminum er jafnframt fallist á að MS hafi veikt samkeppnisstöðu smærri keppinauta (t.d. Mjólkurbúsins Kú) og haft bein áhrif á vöxt þeirra. 

Niðurstaða meirihluta áfrýjunarnefndar samkeppnismála í úrskurði frá 18. nóvember 2016 um að búvörulög hafi heimilað framangreinda háttsemi er því felld úr gildi. Er dómurinn í samræmi við sératkvæði í úrskurði áfrýjunarnefndar sem taldi að staðfesta bæri ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 19/2016. 

Jafnframt staðfestir dómurinn fyrrgreindan úrskurð áfrýjunarnefndar um að MS hafi brotið upplýsingaskyldu samkeppnislaga með því að halda mikilvægu gagni frá Samkeppniseftirlitinu. Í dóminum segir um þetta: „Með háttalagi sínu torveldaði aðalstefnandi rannsókn málsins og því þurfti að hefja rannsóknina að nýju“. Þykir fjárhæð sektarinnar, 40.000.000. kr., hæfileg. 

Til dómsmálsins var stofnað annars vegar af hálfu Samkeppniseftirlitsins, sbr. frétt dags. 26. nóvember 2016, og hins vegar af hálfu MS. 

Til grundvallar rannsóknum eftirlitsins lá kvörtun frá Mjólkurbúinu Kú. 

Bakgrunnsupplýsingar:

Í júlí 2016 komst Samkeppniseftirlitið að þeirri niðurstöðu að Mjólkursamsalan (MS) hefði með alvarlegum hætti brotið gegn banni 11. gr. samkeppnislaga við misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Nánar tiltekið hefði MS misnotað markaðsráðandi stöðu sína með því að selja keppinautum sínum grundvallarhráefni til framleiðslu á mjólkurvörum, þ.e. hrámjólk, á óeðlilega háu verði á sama tíma og MS sjálft og tengdir aðilar (Kaupfélag Skagfirðinga (KS) og dótturfélag þess) fengu sama hráefni á mun lægra verði, og að auki undir kostnaðarverði. Niðurstaða eftirlitsins var að þetta hefði veitt MS og tengdum aðilum verulegt samkeppnisforskot gagnvart keppinautum. Með þessu móti hefði geta slíkra aðila til að keppa við MS og tengd félög verið skert með alvarlegum hætti, en á endanum væri það til þess fallið að skaða hagsmuni neytenda og bænda. 

Auk þess að leggja sekt á MS vegna m.a. þessa brots beindi Samkeppniseftirlitið fyrirmælum til MS. Tilgangur þeirra var að vinna gegn því að samskonar brot yrðu framin aftur og skapa skilyrði fyrir því að smáir keppinautar MS geti starfað á markaðnum til frambúðar.

MS skaut ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem kvað upp sinn úrskurð 18. nóvember 2016. Meirihluti nefndarinnar komst m.a. að þeirri niðurstöðu að undanþáguákvæði búvörulaga hefðu vikið banni samkeppnislaga við misnotkun á markaðsráðandi stöðu til hliðar. Af þessu leiddi að sekt MS vegna brota á 11. gr. samkeppnislaga var felld úr gildi og hið sama gildir um framangreind fyrirmæli Samkeppniseftirlitsins. Á hinn bóginn staðfesti nefndin að MS hefði framið alvarlegt brot á upplýsingaskyldu samkeppnislaga og að fyrirtækinu bæri að greiða 40.000.000 kr. sekt vegna þess. 

Eftir skoðun á forsendum meirihluta áfrýjunarnefndar taldi Samkeppniseftirlitið að því bæri að bera framangreindan úrskurð undir dómstóla og stefndi MS fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur til þess að þola ógildingu á framangreindri niðurstöðu meirihluta áfrýjunarnefndar um samspil búvörulaga og samkeppnislaga. Miðaði sú málshöfðun að því að fá úr því skorið hvort bann samkeppnislaga við misnotkun á markaðsráðandi stöðu tæki að fullu til MS. Jafnframt yrði fengin fullnaðarúrlausn um hvort að fyrirtækið skyldi sæta fullri ábyrgð vegna þeirrar háttsemi sem fjallað var um í málinu og Samkeppniseftirlitið hefði metið sem alvarleg brot gegn minni keppinautum. 

Með lögum, sem tóku gildi árið 2011, var Samkeppniseftirlitinu veitt heimild til að bera úrskurði áfrýjunarnefndar undir dómstóla, en fyrir gildistöku laganna gátu aðeins einstök fyrirtæki höfðað slík mál. Tilgangur þessarar lagabreytingar var að gera Samkeppniseftirlitinu betur kleift að „vernda þá lögvörðu almannahagsmuni sem felast í virkri samkeppni“. Taldi löggjafinn mikilvægt að Samkeppniseftirlitið gæti borið „stór og mikilvæg mál“ sem varða hagsmuni neytenda undir dómstóla. Með þessu móti væri stuðlað að jafnræði á milli gæslu almannahagsmuna og einkahagsmuna fyrirtækja fyrir dómstólum í samkeppnismálum. 

Eins og að framan greindir bar MS úrskurð áfrýjunarnefndar einnig undir dómstóla og krafðist ógildingar á þeim þætti úrskurðarins sem varðaði brot á upplýsingaskyldu.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.