Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Rannsókn Samkeppniseftirlitsins á brotum Húsasmiðjunnar lokið með sátt

11. júlí 2014
snowcap mountain

Fyrri rekstraraðili Húsasmiðjunnar viðurkennir brot og greiðir 325 milljónir kr. í sekt

Nýja Húsasmiðjan grípur til ráðstafana sem ætlað er að efla samkeppni

Stafli af trjádrumbumSamkeppniseftirlitið hefur haft til rannsóknar ætluð brot aðallega Byko og Húsamiðjunnar á banni við ólögmætu samráði, sbr. 10. gr. samkeppnislaga, og ætluð brot Húsasmiðjunnar og Steinullar gegn ákvörðun samkeppnisráðs nr. 19/2002.

Rannsóknin tók til atvika sem áttu sér stað allt til mars 2011.  Á rannsóknartímabili málsins rak Holtavegur 10 ehf. byggingavöruverslanir undir nafninu Húsasmiðjan (hér eftir „gamla Húsasmiðjan“). Síðar var þessi rekstur og vörumerki Holtavegar 10 ehf. seld til nýs eiganda sem í dag rekur Húsasmiðjuna ehf. Þau brot á samkeppnislögum sem viðurkennd hafa verið, og lýst er hér, tengjast ekki nýjum eiganda Húsamiðjunnar.

Holtavegur 10 ehf. og Húsasmiðjan ehf. snéru sér til Samkeppniseftirlitsins og óskuðu eftir sátt. Á þeim grundvelli hefur Samkeppniseftirlitið nýtt heimild samkeppnislaga og gert sátt við fyrirtækin.

Alvarleg brot viðurkennd

Með sáttinni viðurkennir þáverandi rekstraraðili Húsasmiðjunnar, Holtavegur 10, alvarleg brot á samkeppnislögum og fyrri ákvörðun samkeppnisyfirvalda. Sáttin felur í sér eftirfarandi: 

  • Viðurkennt er að gamla Húsasmiðjan hafi brotið gegn 10. gr. samkeppnislaga með umfangsmiklu ólögmætu samráði við Byko. Í því samráðsbroti gömlu Húsasmiðjunnar fólst m.a.:

    • Reglubundin, yfirleitt vikuleg, samskipti við Byko um verð, birgðastöðu o.fl. í því skyni að hækka verð/vinna gegn verðlækkunum á svonefndum grófum byggingvörum (grófvörur, t.d. timbur, steinull og stál)

    • Samráð við Byko um að hækka verð í öllum tilboðum á grófvöru í áföngum.

    • Samráð við Byko um að vinna gegn verðsamkeppni í sölu á gagnvörðu timbri (pallaefni) á aðalsölutíma þeirrar vöru og reyna þess í stað að hækka verð.

    • Að hafa gert sameiginlega tilraun með Byko til að fá Múrbúðina til að taka þátt í samráði um verð á grófvöru og með því að hafa ákveðið með Byko að fylgjast með aðgerðum Múrbúðarinnar á markaðnum.

  • Viðurkennt er að gamla Húsasmiðjan hafi brotið gegn skilyrðum sem sett voru í ákvörðun samkeppnisráðs nr. 19/2002. Þau skilyrði voru sett vegna kaupa Byko, Húsasmiðjunnar og Kaupfélags Skagfirðinga á eignarhlutum í Steinullarverksmiðjunni hf. (nú Steinull hf.). Skilyrðunum var ætlað að vinna gegn því að sameiginleg eignaraðild Byko og Húsasmiðjunnar að Steinull myndi takmarka samkeppni. Játað er að gamla Húsasmiðjan hafi brotið gegn skilyrðunum m.a. með því að hafa beitt sér gagnvart Steinull til að koma í veg fyrir að Múrbúðin fengi ákveðin viðskiptakjör og þannig haft skaðleg áhrif á samkeppnisstöðu Múrbúðarinnar á grófvörumarkaði.

Fyrri rekstraraðili greiðir 325 m.kr. sekt

Framangreind sátt við Holtaveg 10 auðveldar áframhaldandi rannsókn Samkeppniseftirlitsins. Leiðir það til þess að unnt er að gera fyrr enn ella breytingu á markaðnum sem hefur jákvæð áhrif fyrir samkeppni og neytendur. Hér hefur einnig þýðingu að strax við upphaf rannsóknar þessa máls var innan Húsasmiðjunnar gripið til ráðstafana til að vinna gegn frekari brotum.

Sú staðreynd að fyrirtæki gera sátt og viðurkenna brot réttlætir lægri stjórnvaldssekt heldur en ella. Skapar slíkt hvata og möguleika til að hraða rannsókn og aðgerðum neytendum til hagsbóta. Taldi Samkeppniseftirlitið hæfilegt að Holtavegur 10 greiddi 325 milljónir kr. í stjórnvaldssekt vegna brotanna.

Unnið gegn sams konar brotum

Þótt eigendur nýju Húsasmiðjunnar tengist ekki framangreindum brotum er að mati Samkeppniseftirlitsins mikilvægt að vinna gegn því að samskonar brot geti átt sér aftur og stuðla þannig að virkari samkeppni til frambúðar á mikilvægum markaði. Samhliða sáttinni við Holtaveg 10 hefur Samkeppniseftirlitið því  einnig gert sátt við Húsasmiðjuna.

Í sáttinni felst að hert er á þeim skilyrðum sem gilda um eignarhaldið á Steinull. Meðal annars felst í því að fulltrúi Húsasmiðjunnar víkur úr stjórn Steinullar og þess í stað er skipaður óháður stjórnarmaður. Einnig skuldbindur Húsasmiðjan sig til að innleiða og viðhalda samkeppnisréttaráætlun og tryggja að stjórnendur og starfsmenn fyrirtækisins séu ávallt að fullu upplýstir um þær kröfur sem samkeppnisreglur gera til starfsemi fyrirtækja á samkeppnismarkaði.

Bakgrunnsupplýsingar:

  • Þann 8. mars 2011 framkvæmdi efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra (nú embætti sérstaks saksóknara) húsleitir í húsnæði Byko, Húsasmiðjunnar og Úlfsins, í samvinnu við Samkeppniseftirlitið.

  • Rannsókn embættis sérstaks saksóknara beindist að ætluðum brotum starfsmanna fyrirtækjanna og grundvallaðist á kæru Samkeppniseftirlitsins, en þau brot sæta rannsókn lögreglu að undangenginni kæru stofnunarinnar. Hefur Sérstakur saksóknari nú ákært tiltekna starfsmenn.

  • Samhliða rannsókn Sérstaks saksóknara á brotum einstaklinga hefur Samkeppniseftilritið rannsakað brot hlutaðeigandi fyrirtækja. Í maí sl. birti eftirlitið aðilum málsins ítarlegt andmælaskjal þar sem frummat er lagt á hin ætluðu brot. Í framhaldi af því óskuðu framangreind fyrirtæki eftir sátt við Samkeppniseftirlitið, eins og áður greinir.

  • Framangreind sátt er ótengd því máli sem rekið hefur verið á vettvangi Sérstaks saksóknara.

  • Ætluð brot Byko og Steinullar eru enn til rannsóknar hjá Samkeppniseftirlitinu.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

„Fákeppni leiðir til þess að samkeppni slævist“

Gímaldið birti í liðinni viku hlaðvarpsþátt um hátt matvöruverð á Íslandi og samkeppni á dagvörumarkaði. Meðal viðmælenda var Páll Gunnar Pálsson, for...
  • 29. júní 2026
  • Fréttir

Sameiginleg yfirlýsing ECN um samruna

European Competition Network, (ECN), sem er samstarfsvettvangur evrópskra samkeppnisyfirvalda og framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, hefur birt same...
  • 26. júní 2026
  • Fréttir

Samrunamál í sumar, tafir og ný mál

Vegna sumarleyfa og mikilla anna við rekstur samrunamála sem nú eru til formlegrar meðferðar (þegar tilkynntir samrunar) er fyrirsjáanlegt að tafir ve...
  • 23. júní 2026
  • Fréttir

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...