Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 58/2007

30. október 2007
snowcap mountain

Þann 29. júní 2007 barst Samkeppniseftirlitinu samrunaskrá þar sem tilkynnt var um að Fóðurblandan hf. hefði keypt viðskiptavild, vörulager og lausafé af KHB-Miðbæ ehf. Að mati Samkeppniseftirlitsins fólu kaupin í sér samruna í skilningi 4. og 17. gr. samkeppnislaga og fellur samruninn undir samrunaeftirlit 17. gr. laganna, þar sem veltuskilyrði eru uppfyllt.

Samkeppniseftirlitið telur að með samrunanum skapist möguleiki á samþættingu á sölu á vörum og þjónustu samrunaaðila sem komi til með að styrkja stöðu hins sameinaða fyrirtækis á fóður- og áburðarmörkuðum.

Það er niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að samruninn geti, ef ekkert verður að gert, takmarkað núverandi samkeppni og einnig möguleika nýrra aðila til þess að koma inn á fóður- og áburðarmarkaði. Einnig er það mat Samkeppniseftirlitsins að samruninn geti leitt til samtvinnunar vara og/eða þjónustu á mismunandi vöru- og þjónustumörkuðum með tilheyrandi hömlum á samkeppni. Af þessum ástæðum er samrunanum sett eftirfarandi skilyrði sem samrunaaðilar hafa sæst á að hlíta:

  1. Samrunaaðilum er óheimilt að gera það að skilyrði fyrir kaupum á fóðurvörum að kaupendur fóðurs kaupi jafnframt áburð og skilyrði fyrir kaupum á áburði að kaupendur áburðar kaupi jafnframt fóðurvörur. Ennfremur er samrunaaðilum óheimilt að verðleggja fóður sem boðinn er með áburði eða áburður sem boðinn er með fóðri þannig að verðlagning eða verðtilboð jafngildi skilyrði um að ein tegund vöru sé keypt með annarri.
  2. Samrunaaðilum er óheimilt að gera það að skilyrði fyrir kaupum á áburði eða fóðri að einhver önnur vara eða þjónusta sem þeir eða tengd fyrirtæki selja eða veita fylgi með í kaupunum. Ennfremur er samrunaaðilum óheimilt að verðleggja áburð og fóðurvörur með öðrum vörum eða þjónustu tengdra fyrirtækja þannig að verðlagning tilboða jafngildi skilyrði um að ein tegund vöru eða þjónustu sé keypt með annarri.
  3. Selji kaupfélög samrunaaðila áburð eða fóður í endursölu skal viðkomandi fyrirtæki gæta jafnræðis við ákvörðun um slíka endursölu á þann hátt að keppinautum á áburðar- og fóðurmarkaði standi jafnframt til boða að selja áburð og/eða fóður í viðkomandi kaupfélagi til jafns við Áburðarverksmiðjuna hf. og Fóðurblönduna hf. og/eða Bústólpa ehf.
  4. Séu fóðurvörur seldar ásamt áburði skal verð þeirra aðgreint. Sama gildir ef tengd fyrirtæki bjóða sínar vörur eða þjónustu ásamt áburði eða fóðurvörum.
  5. Skilyrði ákvörðunar þessarar taka til samrunaaðila og allra annarra fyrirtækja sem eru og verða til innan samstæðunnar.
  6. Brot á þessum skilyrðum varðar viðurlögum samkvæmt IX. kafla samkeppnislaga.“

Um forsendur og röksemdir ákvörðunarinnar vísast að öðry leyti til ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins nr. 58/2007.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.