Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Ákvörðun til bráðabirgða nr. 1/2007

21. desember 2007
snowcap mountain

Samkeppniseftirlitið hefur tekið ákvörðun til bráðabirgða vegna ætlaðra brota 365 miðla ehf. á samkeppnislögum og brots gegn ákvörðun samkeppnisráðs frá árinu 2005. Ætluð brot 365 miðla felast í því að fyrirtækið synjaði Canal Digital Íslandi ehf. (Canal Digital), sem m.a. hyggst starfa að dreifingu sjónvarpsefnis á Íslandi, um dreifingu á íslenskum sjónvarpsrásum 365 nema gegn því skilyrði að fá aðgang að viðskiptamannagrunni Canal Digital. Það er mat Samkeppniseftirlitsins að krafa 365 miðla um aðgang að viðskiptamannagrunni keppinautarins sé að öllum líkindum verulega samkeppnishamlandi enda eru 365 miðlar með einstaka yfirburðastöðu á íslenska markaðnum fyrir áskriftarsjónvarp. Kann því að vera um misnotkun fyrirtækisins á markaðsráðandi stöðu að ræða.

Aðdragandi málsins
Mál þetta hófst í október sl. þegar Samkeppniseftirlitinu barst erindi frá Canal Digital þar sem kvartað var yfir því að 365 miðlar hefðu synjað um afhendingu á sjónvarpsmerkjum fyrirtækisins. Var þess krafist að Samkeppniseftirlitið kvæði á um það að 365 miðlum yrði gert skylt að afhenda Canal Digital sjónvarps- og útvarpsmerki innlendra stöðva 365 miðla, án frekari skilyrða en heimiluð eru í ákvörðun samkeppnisráðs nr. 12 frá árinu 2005 og sett voru vegna samruna Og fjarskipta og 365 miðla. Þá hafði verið talin hætta á því að samruninn myndi takmarka möguleika nýrra aðila til þess að koma inn á m.a. sjónvarps og útvarpsmarkaði. Einnig var talin hætta á því, ef ekkert yrði að gert, að valkostum neytenda myndi fækka í framtíðinni. Frá sjónarhóli neytenda gæti sú staða skapast við samrunann að val þeirra á fjarskiptafyrirtæki hefði áhrif á aðgang þeirra að sjónvarps- og útvarpsefni. Sökum þessa var talin ástæða til þess að grípa til íhlutunar vegna umrædds samruna.

Sennileg misnotkun á markaðsráðandi stöðu 365 miðla á markaði fyrir áskriftarsjónvarp
Samkeppniseftirlitið kemst í bráðabirgðaákvörðun sinni að þeirri niðurstöðu að sú afstaða 365 miðla að afhenda ekki sjónvarpsmerki félagsins til Canal Digital nema gegn því að halda beinu viðskiptasambandi við áskrifendur sem skipta vilji við Canal Digital feli sennilega í sér neitun á afhendingu sem fari gegn 11. gr. samkeppnislaga og ákvörðun samkeppnisráðs nr. 12/2005. Nánar tiltekið er átt við að 365 setji það skilyði að hafa aðgang að upplýsingum um nöfn og heimilsföng þeirra aðila sem kaupa áskrift að rásum 365 af Canal Digital. Samkeppniseftirlitið telur að aðgangur 365 miðla að viðskiptamannaskrá Canal Digital geti gert hinu markaðsráðandi fyrirtæki mögulegt að beina markaðsatlögu sinni beint að viðskiptavinum Canal Digital og raska með því samkeppni.

Að mati Samkeppniseftirlitsins mun krafa 365 miðla sennilega takmarka samkeppni verulega og hafa útilokandi áhrif á markaði þar sem fyrirtækið er í einstakri yfirburðarstöðu. 

Fyrirmælum beint til 365 miðla ehf.
Í bráðabirgðaákvörðuninni segir að horfa verði til þess að Canal Digital sé að hefja samkeppni á markaðnum fyrir miðlun sjónvarpsefnis í áskrift á Íslandi. Fyrir á þessum markaði séu 365 miðlar með sjónvarpsstöðvar sínar Stöð 2, Sýn og Sýn 2. 365 miðlar njóti því einstakrar yfirburðastöðu á markaðnum fyrir áskriftarsjónvarp.

Samkvæmt gögnum málsins hafði Canal Digital tekið frá pláss fyrir  sjónvarpsstöðvar 365 miðla á gervihnetti. Félagið getur ekki haldið þeim plássum opnum lengi og bíður að auki verulegan kostnað af því. Af þessu leiðir að verulegt tjón getur hlotist af því fyrir Canal Digital að fá ekki skjóta úrlausn málsins. Jafnframt eru miklir samkeppnislegir hagsmunir fólgnir í því fyrir CDI að geta hafið markaðssókn sína hið fyrsta. Af þessu leiðir að bið eftir endanlegri niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins getur leitt til þess að veruleg röskun verði á samkeppni og jafnvel þess að Canal Digital hverfi frá tilraunum sínum að hasla sér völl í dreifingu sjónvarpsefnis hér á landi. Í ljósi þessa alls telur Samkeppniseftirlitið brýna nauðsyn á því að beina fyrirmælum til 365 að afhenda sjónvarpsmerki stöðva sinna þegar í stað til Canal Digital gegn því að síðarnefnda fyrirtækið uppfylli þær málefnalegu kröfur sem 365 miðlum er heimilt að gera án þess að þær fari gegn samkeppnislögum.

Bráðabirgðaákvörðun Samkeppniseftirlitsins gildir til 1. apríl 2008.

Ákvörðun nr. 1/2007.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.