Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Fréttatilkynning – Icelandair ehf. sektað um 190 milljónir króna fyrir að misnota markaðsráðandi stöðu sína

30. mars 2007
snowcap mountain

Samkeppniseftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að Icelandair hafi brotið gegn samkeppnislögum með því að misnota markaðsráðandi stöðu sína í áætlunarflugi á flugleiðunum milli Keflavíkur og Kaupmannahafnar annars vegar og Keflavíkur og London hins vegar. Brotið átti sér stað á árinu 2004 þegar Icelandair bauð netfargjöld, svokallaða Netsmelli að upphæð 16.900 kr., í miklu magni til umræddra áfangastaða á verði sem ekki stóð undir kostnaði. Um er að ræða skaðlega undirverðlagningu í skilningi samkeppnislaga. Icelandair bauð umrædd ólögmæt netfargjöld u.þ.b. einu ári eftir að Iceland Express hóf áætlunarflug á milli umræddra áfangastaða í samkeppni við Icelandair. Samkeppniseftirlitið hefur með ákvörðun sinni gert Icelandair að greiða 190 milljónir króna sekt í ríkissjóð.

Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins má rekja til þess að snemma ársins 2003 hóf lágfargjaldafélagið Iceland Express samkeppni við Icelandair í flugi á flugleiðum milli Keflavíkur og Kaupmannahafnar og á milli Keflavíkur og London. Icelandair brást við með því að bjóða mun lægri fargjöld en áður höfðu verið í boði hjá félaginu á umræddum tveimur flugleiðum, svokallaða Vorsmelli að upphæð 14.900 kr. Iceland Express kvartaði við samkeppnisyfirvöld vegna Vorsmella Icelandair sem væru boðnir til að koma í veg fyrir að félagið næði fótfestu á markaðnum. Samkeppnisráð og síðar áfrýjunarnefnd samkeppnismála komust að þeirri niðurstöðu á árinu 2003 að umrædd fargjöld hefðu falið í sér skaðlega undirverðlagningu sem hefði verið misnotkun Icelandair á markaðsráðandi stöðu og brot á samkeppnislögum.

Í upphafi ársins 2004 bauð Icelandair nýja Netsmelli á umræddum samkeppnisleiðum. Um var að ræða fargjöld að upphæð 16.900 kr., þ.e. 2.000 kr. hærri en hinir ólögmætu Vorsmellir sem í boði voru árið 2003. Iceland Express kvartaði við samkeppnisyfirvöld yfir framangreindum Netsmellum. Það er niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að Netsmellirnir sem um var deilt hafi ekki staðið undir kostnaði, eins og hann er skilgreindur í málinu með hliðsjón af fyrri ákvörðun samkeppnisráðs og úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Er það mat Samkeppniseftirlitsins að Icelandair hafi í raun notað hagnað vegna sölu á dýrari fargjöldum, s.s. viðskiptafargjöldum þar sem Icelandair nýtur einokunarstöðu, til að niðurgreiða netfargjöld sem seld voru í samkeppni við Iceland Express.

Eins og fyrr segir braut Icelandair einnig samkeppnislög á árinu 2003 með því að bjóða áðurnefnda Vorsmelli þegar Iceland Express var að hasla sér völl á markaðnum. Með því að bjóða umrædda Netsmelli á árinu 2004 braut Icelandair aftur gegn samkeppnislögum. Að mati Samkeppniseftirlitsins var umræddum Netsmellum beint gegn Iceland Express í þeim tilgangi að veikja það félag og þar með að raska samkeppni á þjóðhagslega mjög mikilvægum markaði hér á landi.

Það er því mat Samkeppniseftirlitsins að brot Icelandair hafi verið alvarlegt. Með vísan til alls framangreinds er Icelandair gert að greiða 190 milljónir króna stjórnvaldssekt í ríkissjóð.

Ákvörðun nr. 11/2007.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.