Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Fréttatilkynning – Samkeppniseftirlitið setur skilyrði fyrir samruna JPV útgáfu og Vegamóta (Eddu útgáfu) í útgáfufyrirtækið Forlagið, stærsta bókaforlag á Íslandi

5. febrúar 2008
snowcap mountain

Síðastliðið haust var Samkeppniseftirlitinu tilkynnt um samruna JPV útgáfu ehf. og Vegamóta ehf. JPV er bókaútgáfa og Vegamót voru í eigu Máls og menningar bókmenntafélags, sjálfseignarstofnunar sem hefur haft bókaútgáfu með höndum frá árinu 1937. Mál og menning var á síðustu árum minnihlutaeigandi í Eddu útgáfu.

Í aðdraganda samrunans höfðu Vegamót keypt bókaútgáfuhluta Eddu útgáfu. Fólst því í samrunanum að bókaútgáfa Eddu útgáfu sameinaðist JPV útgáfu. Að mati Samkeppniseftirlitsins var hér um að ræða samruna í skilningi samkeppnislaga og taldi stofnunin að samruninn gæti verið skaðlegur samkeppni ef ekki yrði gripið til íhlutunar vegna hans.

Til að eyða þeim samkeppnislegu vandamálum sem Samkeppniseftirlitið taldi að samruninn hefði í för með sér lögðu samrunaaðilar fram tillögur að skilyrðum sem honum yrðu sett. Viðræður Samkeppniseftirlitsins og samrunaaðila hafa leitt til þess að Forlagið hefur gengist undir sátt um tuttugu og eitt tölusett skilyrði.  Þannig mun Forlagið selja frá sér tiltekin útgáfuréttindi, þ.e. réttindi til að gefa út tilteknar bækur og ritsöfn, ásamt birgðum af þessum bókum og ritsöfnum, í því skyni að draga úr markaðsstyrk Forlagsins gagnvart keppinautum í bókaútgáfu.

Forlagið hefur jafnframt undirgengist ýmis önnur skilyrði sem ætlað er að efla samkeppni og vinna gegn skaðlegum áhrifum samrunans. Meðal annars er Forlaginu gert að semja aðeins um útgáfurétt á einum bókartitli hverju sinni við rithöfunda. Þá er Forlaginu óheimilt að veita endurseljendum afslátt frá heildsöluverði bóka sinna nema Forlagið geti með óyggjandi hætti sýnt fram á kostnaðarlegt hagræði af viðskiptum við viðkomandi endurseljanda sem sé í samræmi við afsláttinn. Forlaginu er ekki heimilt að mismuna endurseljendum bóka í hvers kyns kynningarstarfi, auglýsingaherferðum, eða með efni sem snýr að uppstillingu og auglýsingu bóka í verslunum endurseljenda nema slík mismunun byggist á almennum viðskiptalegum sjónarmiðum. Þá má nefna að Forlagið mun hér eftir aðeins ákveða forlagsverð (heildsöluverð) þeirra bóka sem fyrirtækið gefur út og selur til endurseljenda bóka. Forlaginu verður óheimilt að hafa nokkur afskipti af söluverði endurseljenda eða birta með nokkru móti söluverð endurseljenda á bókum sem Forlagið gefur út.

Þau skilyrði sem samrunanum hafa verið sett eru að mati Samkeppniseftirlitsins nægjanleg til þess að eyða þeim samkeppnislegu vandamálum sem ella hefðu skapast með samrunanum.

Ákvörðun nr. 8/2008.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og greinar

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

  • 11. maí 2026
  • Fréttir

Eftirlit nauðsynlegt á fákeppnismarkaði

  • 4. maí 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samkeppniseftirlitinu falið að fylgjast með verðlagningu á eldsneyti

  • 30. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

„Gríðarlegir hagsmunir fyrir íslenskt samfélag að það sé samkeppni á fjármálamarkaði“

  • 27. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Sumarstarf fyrir hagfræðinema hjá SKE

  • 22. apríl 2026
  • Fréttir
Semsett mynd/SKE

Samruni Heklu og Bílson – umsagnarferli

  • 20. apríl 2026
  • Fréttir
Samkeppniseftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að samruni Ferro Zink ehf. og Metal ehf. hindri virka samkeppni og skuli því ógiltur.

Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro Zink og Metal

  • 17. apríl 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Greinar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.