Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Fréttatilkynning – Landbúnaðarráðherra hvattur til að afnema sem allra fyrst toll á fóðurblöndum

4. mars 2008
snowcap mountain

Skjaldarmerki_Islands2Í áliti sem Samkeppniseftirlitið hefur birt í dag beinir eftirlitið þeim tilmælum til landbúnaðarráðherra að hann beiti sér fyrir því að afnema tolla á fóðurblöndum.

Mikil fákeppni ríkir á markaði fyrir framleiðslu og sölu á fóðri fyrir jórturdýr, svín og alifugla á Íslandi. Um árabil hafa einungis verið tvö fyrirtæki á Íslandi sem framleiða og selja fóður. Með innflutningi á fóðurblöndum er unnt að veita innlendum framleiðendum samkeppnislegt aðhald. Samkvæmt reglugerð er hins vegar lagður tollur á innfluttar fóðurblöndur, 3,90 kr. á hvert kg. Vinnur tollur þessi gegn innkomu nýrra keppinauta sem áhuga hefðu á að selja tilbúnar fóðurblöndur á innlendum fóðurmarkaði.

Í áliti Samkeppniseftirlitsins er vikið að því að fóðurtollar séu til þess fallnir að vernda innlenda fóðurframleiðendur og viðhalda samkeppnishamlandi fákeppni á fóðurmarkaðnum. Fer þessi tollur því gegn markmiðum samkeppnislaga. Að mati Samkeppniseftirlitsins myndi afnám fóðurtollsins stuðla að aukinni samkeppni á fóðurmarkaði, bændum og neytendum til hagsbóta. Að sama skapi myndu framangreindar aðgerðir stuðla að lækkun framleiðslukostnaðar bænda og þar með að lægra verði á matvælum til neytenda.

Að undanförnu hafa orðið miklar verðhækkanir á fóðri hér á landi og sökum m.a. þessa hafa verið boðaðar verðhækkanir á landbúnaðarafurðum. Í ljósi þessa er athygli landbúnaðarráðherra vakin á því í álitinu að afar mikilvægt sé að afnema umræddan verndartoll hið fyrsta og skapa þannig skilyrði fyrir aukinni samkeppni á íslenskum fóðurmarkaði.

Aðdragandi álits Samkeppniseftirlitsins
Í kjölfar skýrslu norrænna samkeppnisyfirvalda um matvörumarkaði á Norðulöndum, Nordic Food Markets – a taste for competition sem birt var í desember 2005, kynnti Samkeppniseftirlitið sínar eigin áherslur á matvörumarkaði í því skyni að auka virka samkeppni og lækka matvöruverð. Eitt af þeim atriðum sem Samkeppniseftirlitið taldi ástæðu til að gera athugasemdir við og athuga nánar var innflutningsvernd á búvörum og er þetta álit liður í þeirri athugun. Samkeppniseftirlitið hefur til athugunar aðrar innflutningshömlur á þessu sviði.

Álit nr. 1/2008.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.