Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Samkeppniseftirlitið setur samruna Senu og Skífunnar skilyrði

3. apríl 2009
snowcap mountain

skifan-logoSamkeppniseftirlitið hefur að undanförnu haft til meðferðar kaup Senu ehf. á Skífunni ehf., en kaup þessi áttu sér stað í lok síðasta árs. Með ákvörðun nr. 12/2009 hefur Samkeppniseftirlitið sett samrunanum skilyrði.

Lögð er sú skylda á Senu að Skífan verði seld til ótengds aðila. Á meðan söluferli Skífunnar stendur yfir og þar til Skífan verður seld hafa samrunaaðilar fallist á að hlíta tilteknum skilyrðum sem er ætlað að koma í veg fyrir þau samkeppnislega skaðlegu áhrif sem af samrunanum stafar á meðan Skífan er enn í eigu Senu.

Umrædd skilyrði fela m.a. í sér að skýr rekstrarlegur aðskilnaður sé á milli Senu og Skífunnar og er markmið þeirra m.a. að tryggja að viðskipti milli samrunaaðila á þeim mörkuðum sem málið tekur til, verði eins og um óskylda aðila sé að ræða og að vernda þannig samkeppni á bæði heildsölu- og smásölumarkaði. 

Bakgrunnsupplýsingar:
Samruninn felur í sér kaup Senu ehf. á 100% hlutafjár Skífunnar ehf. en tilkynning um samrunann barst Samkeppniseftirlitinu þann 21. nóvember 2008. Með bréfi sem Samkeppniseftirlitinu barst þann 16. mars 2009 var tilkynnt um að breytingar hefðu orðið á eignarhaldi Senu með undirritun samnings milli Íslenskrar afþreyingar hf. sem seljanda og Garðarshólma rekstrarfélags ehf. sem kaupanda að félaginu.  Með þeim viðskiptum var skorið á tengsl við annan sterkan smásöluaðila, Haga hf., sem m.a. reka Hagkaupsbúðirnar.

Samkeppniseftirlitið taldi að samruninn leiddi til styrkingar á markaðsráðandi stöðu Senu á markaði fyrir útgáfu tónlistar, heildsölu og dreifingu tónlistar og heildsölu tölvuleikja. Áhrifa af þeirri styrkingu á stöðu Senu á þessum mörkuðum myndi jafnframt gæta á þeim mörkuðum sem Skífan starfar á, þ.e. smásölu á tónlist og tölvuleikjum. Þá taldi Samkeppniseftirlitið að ástæða væri til að ætla að samkeppnishamlandi vandamál gætu komið upp í kjölfar samrunans á þeim mörkuðum sem málið tekur til. Af framangreindum ástæðum myndi draga úr samkeppni á nefndum mörkuðum og var það niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að samruninn væri andstæður markmiðum samkeppnislaga. Í ljósi þess taldi Samkeppniseftirlitið að ástæða væri til að grípa til íhlutunar vegna samrunans sem fælist í ógildingu eða setningu skilyrða.

Viðræður við nýja eigendur Senu ehf. leiddu í kjölfarið til þess að samrunaaðilar hafa gengist undir sátt í málinu á grundvelli 17. gr. f samkeppnislaga og 22. gr. reglna um málsmeðferð Samkeppniseftirlitsins nr. 880/2005.

Á þeim grundvelli hefur nú verið tekin ákvörðun í málinu og samrunanum sett skilyrði þau sem líst er hér að framan.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.