
Samkeppniseftirlitið birtir í dag í fyrsta skipti svokallaðan pistil á heimasíðu sinni. Er pistlum eftirlitsins ætlað að varpa ljósi á aðstæður á samkeppnismörkuðum og framkvæmd samkeppnislaga eða koma að öðru leyti á framfæri sjónarmiðum um samkeppnismál. Um leið er leitast við að auka gegnsæi í störfum Samkeppniseftirlitsins. Pistlarnir koma til viðbótar annarri upplýsingagjöf á heimasíðu eftirlitsins en þar er að finna ákvarðanir, álit og úrskurði samkeppnisyfirvalda, fréttir, skýrslur og annað efni um samkeppnismál.
Fyrsti pistillinn (PDF skjal – Opnast í nýjum glugga) er eftir Páll Gunnar Pálsson forstjóra Samkeppniseftirlitsin.
"*" gefur til kynna skyldusvið