Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til stjórnvalda að meta samkeppnisleg áhrif nýrra laga og stjórnvaldsfyrirmæla

15. desember 2009
snowcap mountain

SE_Skjaldamerki

Samkeppniseftirlitið hefur í dag beint því til forsætisráðherra að stuðla að því að  stjórnvöldum verði gert skylt að framkvæma staðlað samkeppnismat í tengslum við undirbúning að setningu laga og stjórnvaldsfyrirmæla. 

Þessi tilmæli koma fram í sérstöku áliti, nr. 2/2009, Samkeppnismat stjórnvalda.

Markmið með samkeppnismati er að fá opinbera aðila til að meta með sjálfstæðum hætti hvaða áhrif tiltekin reglusetning hefur á samkeppnismarkaði. Telja verður að samkeppnismat geti stuðlað að því að markaðir opnist eða haldist opnir og þannig verði komið í veg fyrir óþarfar opinberar aðgangshindranir, þ.e. hindranir nýrra fyrirtækja við að komast inn á nýja markaði eða vaxa við hlið stærri fyrirtækja.

Tillögur Samkeppniseftirlitsins gera ráð fyrir einfaldri aðferð við samkeppnismat. Þannig er notast við fjórar grundvallarspurningar sem skera eiga úr um það hvort ítarlegra samkeppnismat þurfi að fara fram. Ef þess er þörf þá eru sex stöðluð atriði sem þarf að skoða nánar. Með því að samkeppnismat sé staðlað og einfalt eru meiri líkur á því að stjórnvöld nýti sér kosti þess. Þá telur Samkeppniseftirlitið mikilvægt að við endurskoðun á Handbók um undirbúning og frágang stjórnarfrumvarpa verði bætt við sérstöku kafla um samkeppnismat.

Með því að draga úr samkeppnishamlandi áhrifum opinberrar reglusetningar er verið að viðhalda og auka virka samkeppni. Slík vinnubrögð hjá hinu opinbera stuðla að kraftmiklu atvinnulífi til lengri tíma og eykur ávinning neytenda.  Þetta er ekki síst mikilvægt við endurreisn efnahagslífsins.

Undanfarin misseri hafa verið færð ítarlög rök fyrir því að aðgerðir til þess að viðhalda eða efla samkeppni stuðli að hraðari endurreisn atvinnulífsins og séu því rétt viðbrögð við efnahagskreppu. Þennan boðskap m.a. sjá í skýrslu Samkeppniseftirlitsins nr. 2/2008, Öflug uppbygging – opnun markaða og efling atvinnustarfsemi, sem kom út í nóvember 2008 og í sameiginlegri skýrslu norrænu samkeppniseftirlitanna „Competition Policy and Financial Crises – Lessons Learned and the Way Forward“ sem kom út þann 10. september 2009.

Bakgrunnsupplýsingar
Í skýrslu Samkeppniseftirlitsins nr. 2/2008, Öflug uppbygging – opnun markaða og efling atvinnustarfsemi, sem kom út í nóvember 2008, var sérstaklega vikið að mikilvægi þess að stjórnvöld leggi mat á áhrif nýrra laga og stjórnvaldsfyrirmæla á samkeppni, í því skyni að afstýra óþarfa samkeppnishindrunum. Þannig var farið yfir málefnið með ítarlegum hætti, m.a. með hliðsjón af erlendum rétti, og gerðar almennar tillögur til stjórnvalda varðandi þetta.

Í kjölfar útgáfu skýrslu Samkeppniseftirlitsins var forsætisráðuneytinu tjáð að Samkeppniseftirlitið hefði hug á því að gefa út álit vegna samkeppnismats á nýjum lögum og reglum og því gefinn kostur að veita umsögn um málefnið.  Í athugasemdum var lýst vilja til samstarfs við Samkeppniseftirlitið um leiðir til þess að virk samkeppni yrði varin með tilhlýðilegum hætti við undirbúning löggjafar og endurskoðun gildandi laga.

Samkvæmt samkeppnislögum er Samkeppniseftirlitinu ætlað það hlutverk að gæta þess að aðgerðir opinberra aðila takmarki ekki samkeppni og benda stjórnvöldum á leiðir til þess að gera samkeppni virkari og auðvelda aðgang nýrra samkeppnisaðila á markaði. Þetta gerir Samkeppniseftirlitið m.a. með því að beina opinberum álitum til stjórnvalda.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.