Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Samkeppniseftirlitið setur bönkum skilyrði vegna yfirtöku á fyrirtækjum

31. mars 2010
snowcap mountain

SE_logo_75pxMeð þremur ákvörðunum sem birtar eru í dag, setur Samkeppniseftirlitið bönkum ítarleg skilyrði vegna yfirtöku þeirra á fyrirtækjum sem starfa á mikilvægum samkeppnismörkuðum. Eru skilyrðin sett til að draga úr samkeppnisröskun sem stafað getur af eignarhaldi banka á viðkomandi fyrirtækjum.

  • Þær ákvarðanir sem birtar eru í dag varða yfirtöku Landsbankans (Eignarhaldsfélagsins Vestia ehf.) á Teymi, sbr. ákvörðun nr. 7/2010
  • Íslandsbanka á Ingvari Helgasyni og Bifreiðum og landbúnaðarvélum, sbr. ákvörðun nr. 8/2010
  • og Arion banka á Högum, sbr. ákvörðun nr. 6/2010

Strax í kjölfar bankahrunsins, eða í nóvember 2008, beindi Samkeppniseftirlitið tíu meginreglum um samkeppni til banka í eigu ríkisins, sem eftirlitið taldi að hafa þyrfti hliðsjón af við endurskipulagningu fyrirtækja (sjá álit nr. 3/2008, Ákvarðanir banka og stjórnvalda um framtíð fyrirtækja á samkeppnismörkuðum).

Í desember sl. birti Samkeppniseftirlitið umræðuskjal nr. 2/2009, Bankar og endurskipulagning fyrirtækja, en þar er fjallað um skuldavanda íslenskra fyrirtækja og samkeppnisleg álitaefni tengd honum. Kallaði Samkeppniseftirlitið eftir sjónarmiðum ýmissa hagsmunaaðila um umræðuskjalið, sem nýst hafa við þá íhlutun í starfsemi banka sem hér er kynnt.

Úrskurður áfrýjunarnefndar nr. 18/2009, Síminn gegn Samkeppniseftirlitinu, sem féll í lok janúar á þessu ári, hafði einnig mikla þýðingu við úrlausn framangreindra mála. Samkvæmt úrskurðinum hefur Samkeppniseftirlitið heimild til að setja yfirtöku banka á atvinnufyrirtækjum skilyrði, enda þótt yfirtakan feli ekki í sér skörun á mörkuðum eða markaðsráðandi stöðu. Taldi áfrýjunarnefndin að óvenjulegar aðstæður í atvinnulífinu kölluðu á þessa heimild.

Við vinnslu framangreindra ákvarðana hefur einnig verið höfð hliðsjón af ýmsum kvörtunum og ábendingum sem Samkeppniseftirlitinu hafa borist.

Skilyrði banka vegna yfirtöku fyrirtækja

Það er niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að framangreindar yfirtökur raski samkeppni og að nauðsynlegt sé því að setja þeim skilyrði sem ætlað er að vinna gegn þeirri röskun. Hafa bankarnir fallist á að hlíta þeim skilyrðum sem sett eru fram í viðkomandi ákvörðunum.

Helstu skilyrði eru eftirfarandi:

  • Selja skal viðkomandi atvinnufyrirtæki innan tiltekins tíma. Setja verður eignarhaldi banka á atvinnufyrirtækjum þröngar tímaskorður í því skyni að takmarka samkeppnisröskun, að teknu tilliti til hagsmuna bankans af því að hafa eðlilegt svigrúm til þess að auka eða viðhalda verðmæti þeirra eigna sem um ræðir. Sölufrestir eru mismunandi eftir aðstæðum í hverju máli. Um þá ríkir trúnaður, enda geta slíkir tímafrestir, ef opinberir væru, haft óeðlileg áhrif á söluferli og söluverð.
  • Tryggja skal að yfirtekin fyrirtæki starfi sem sjálfstæðir keppinautar á markaði. Þetta skal m.a. gert með því að fela sjálfstæðu eignarhaldsfélagi hvers banka rekstur viðkomandi fyrirtækja. Skal eignarhaldsfélag staðsett utan viðkomandi banka og rekið sem sjálfstætt félag. Ennfremur eru sett skilyrði um stjórnarsetu í viðkomandi eignarhaldsfélögum og atvinnufyrirtækjunum sjálfum. M.a. skal meirihluti stjórnarmanna í eignarhaldsfélögum eða atvinnufyrirtækjum vera óháður bönkunum.
  • Setja skal viðkomandi atvinnufyrirtækjum eðlilegar arðsemiskröfur. Þetta er mikilvægt til þess að vinna gegn því að bankar sjái sér hag í því að auka virði yfirtekinna fyrirtækja með því að fjármagna undirboð eða auka markaðssókn og stækka þar með markaðshlutdeild viðkomandi fyrirtækja. Þessum skilyrðum er einnig ætlað að takmarka hættu á að stjórnendur og starfsmenn hinna yfirteknu fyrirtækja líti á eignarhald banka sem vernd gegn hvers konar áföllum (e. moral hazard).
  • Bönkunum er óheimilt að hlutast til um viðskipti milli hinna yfirteknu fyrirtækja og annarra fyrirtækja sem bankarnir eiga hluti í. Þannig er spornað gegn því að yfirtekið fyrirtæki og önnur fyrirtæki tengd viðkomandi banka beini viðskiptum sínum hvert til annars, án þess að eðlilegar forsendur um viðskiptakjör liggi til grundvallar.
  • Bönkunum er óheimilt að hlutast til um viðskipti milli hinna yfirteknu fyrirtækja og viðskiptavina bankanna.  Jafnframt skal tryggja að sömu aðilar innan hvers banka séu ekki viðskiptastjórar annars vegar  yfirtekinna fyrirtækja og hins vegar viðskiptavina eða keppinauta hinna yfirteknu fyrirtækja.  Þá skal tryggja að viðkvæmar upplýsingar berist ekki á milli þessara fyrirtækja.
  • Birta skal ársuppgjör og hálfsársuppgjör yfirtekinna fyrirtækja opinberlega. Jafnframt skal birta margvíslegar upplýsingar um starfsemi eignarhaldsfélaga og hinna yfirteknu fyrirtækja, auk upplýsinga um framkvæmd skilyrðanna. Þetta er gert til að tryggja gegnsæi í rekstri fyrirtækjanna.
  • Tryggja skal ítarlegt og viðvarandi eftirlit innan bankanna með framkvæmd skilyrðanna, ásamt reglulegri skýrslugjöf til Samkeppniseftirlitsins. Ber bönkunum að tryggja að óháður aðili innan hvers banka geti með trúverðugum hætti fylgst með því að farið sé eftir skilyrðunum. Skal t.d. tryggt að eftirlitsaðilinn geti aflað sér utanaðkomandi sérfræðiaðstoðar telji hann þörf á. Þetta eftirlit er til viðbótar við almennt eftirlit sem Samkeppniseftirlitið hefur með því að fyrirtæki fari eftir samkeppnislögum og settum skilyrðum.

Nánar er fjallað um framangreind skilyrði og forsendur þeirra í ákvörðunum nr. 6-8/2010, sem birtar eru á heimasíðu Samkeppniseftirlitsins, Jafnframt því sem að framan er rakið fjalla ákvarðanirnar um aðstæður á viðkomandi mörkuðum og útfærslu skilyrða miðað við samkeppnisleg áhrif í hverju máli.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.