Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Ekki tilefni til aðgerða vegna rannsóknar á meintum brotum Mjólkursamsölunnar

21. maí 2010
snowcap mountain

ms_logoSamkeppniseftirlitið hefur í dag lokið rannsókn sinni á meintri misnotkun Mjólkursamsölunnar á markaðsráðandi stöðu á markaði fyrir framleiðslu og heildsölu á mjólkurvörum. Samkeppniseftirlitið kemst að þeirri niðurstöðu að þau gögn sem aflað var í málinu gefi til kynna að MS hafi brugðist við aukinni samkeppni á markaði sem ríkti eftir innkomu Mjólku á markað árið 2005 og stóð til ársins 2009 af festu og afli. Hin aukna samkeppni hafi veitt Mjólkursamsölunni umtalsvert og nauðsynlegt aðhald á markaði sem neytendur nutu góðs af með auknu vöruúrvali og lægra verði og ennfremur hærra mjólkurverði til bænda. Gögn málsins gefa hins vegar ekki til kynna að Mjólkursamsalan hafi farið út fyrir ramma samkeppnislaga. Þannig er ekki leitt í ljós að Mjólkursamsalan hafi með kerfisbundnum og skipulögðum aðgerðum reynt að útiloka keppinauta frá markaði með samkeppnishamlandi aðgerðum. Því er ekki tilefni til frekari aðgerða af hálfu Samkeppniseftirlitsins.

Bakgrunnsupplýsingar
Rannsókn málsins hófst með húsleit í júní 2007 þar sem lagt var hald á gögn og afrit tekin af tölvutækum gögnum. Stuttu síðar kvað Héraðsdómur Reykjavíkur upp úrskurð um að forstjóri Samkeppniseftirlitsins væri skylt að víkja sæti við meðferð stjórnsýslumálsins. Þeim dómi var áfrýjað af hálfu Samkeppniseftirlitsins og í apríl 2008 var Samkeppniseftirlitið sýknað af kröfu Mjólkursamsölunnar í Hæstarétti. Á meðan á þessum málarekstri stóð frestaði Samkeppniseftirlitið allri meðferð stjórnsýslumálsins og hófst því úrvinnsla gagna sem aflað var við húsleitina ekki fyrr en sumarið 2008. Við meðferð málsins aflaði Samkeppniseftirlitið jafnframt fjölmargra gagna frá tugum fyrirtækjum á markaði í rannsóknarskyni. Endanlegri gagnaöflun í málinu lauk í október 2009.

Sjá nánar ákvörðun nr. 17/2010.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og greinar

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

  • 11. maí 2026
  • Fréttir

Eftirlit nauðsynlegt á fákeppnismarkaði

  • 4. maí 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samkeppniseftirlitinu falið að fylgjast með verðlagningu á eldsneyti

  • 30. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

„Gríðarlegir hagsmunir fyrir íslenskt samfélag að það sé samkeppni á fjármálamarkaði“

  • 27. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Sumarstarf fyrir hagfræðinema hjá SKE

  • 22. apríl 2026
  • Fréttir
Semsett mynd/SKE

Samruni Heklu og Bílson – umsagnarferli

  • 20. apríl 2026
  • Fréttir
Samkeppniseftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að samruni Ferro Zink ehf. og Metal ehf. hindri virka samkeppni og skuli því ógiltur.

Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro Zink og Metal

  • 17. apríl 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Greinar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.