Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Hagar gera sátt við Samkeppniseftirlitið og aðstoða þannig við rannsókn á samkeppnishömlum á kjötmarkaði

27. september 2010
snowcap mountain

Hagar_logo-270 milljónir kr. greiddar í sekt 
-Hagar grípa til ráðstafana sem ætlað er að efla samkeppni

Samkeppniseftirlitið hefur haft til rannsóknar hvort annars vegar verslanir Bónuss í eigu Haga,og hins vegar átta kjötvinnslufyrirtæki hafi brotið gegn 10. gr. samkeppnislaga. Þetta gerðu fyrirtækin með tvíhliða samningum eða samstilltum aðgerðum í tengslum við smásöluverðlagningu á kjöti og unnum kjötvörum sem kjötvinnslurnar hafa verðmerkt fyrir Haga (svokölluð forverðmerking).

Eftir umfangsmikla athugun á m.a. tölvupóstssamskiptum kjötvinnslufyrirtækjanna og Haga kynnti Samkeppniseftirlitið í júlí sl. umræddum fyrirtækjum þá frumniðurstöðu að Hagar og einstakar kjötvinnslur hefðu brotið samkeppnislög í tengslum við smásöluverðlagningu á kjötvörum í verslunum Bónuss. Var kjötvinnslunum og Högum gefinn kostur á að tjá sig um þessa frumniðurstöðu.

Í kjölfarið sneru Hagar sér til Samkeppniseftirlitsins og óskuðu eftir því að ljúka málinu með sátt. Á þeim grundvelli hefur Samkeppniseftirlitið nýtt heimild samkeppnislaga og gert sátt við Haga. Sáttin felur í sér eftirfarandi:

  • Hagar viðurkenna að hafa brotið 10. gr. samkeppnislaga með samningum eða samstilltum aðgerðum við umræddar kjötvinnslur í tengslum við verðlagningu á kjötvörum í smásölu.
  • Hagar fallast á að greiða 270 milljónir kr. í stjórnvaldssekt vegna brotanna.
  • Hagar samþykkja að grípa til ráðstafana sem ætlað er að efla samkeppni í sölu á kjötvörum neytendum til hagsbóta. Í þessu felst m.a. að Hagar skuldbinda sig til þess hætta öllum samskiptum við kjötvinnslufyrirtæki um smásöluverð í verslunum Haga og hætta í áföngum að taka við vörum frá þeim sem merktar eru með leiðbeinandi smásöluverði. Þá er lagt bann við því að verslanir Haga gefi upp afslátt á kjötvörum nema um raunverulega lækkun frá gildandi smásöluverði sé að ræða.

Rétt er að taka fram að Hagar hafa í samskiptum við Samkeppniseftirlitið lagt á það áherslu að félagið hafi ekki haft ásetning til þess að raska samkeppni og að við mat á eðli málsins verði að horfa til þess að löng hefð sé fyrir forverðmerkingum hjá öllum fyrirtækjum á matvörumarkaði.

Sátt þessi auðveldar rannsókn Samkeppniseftirlitsins auk þess sem hún hefur mun fyrr en ella í för með sér breytingu á markaðnum og jákvæð áhrif fyrir samkeppni og neytendur.

Með sáttinni er málinu lokið gagnvart Högum. Þáttur kjötvinnslufyrirtækjanna (Kjarnafæði hf., Síld og fiskur ehf., Sláturfélag Suðurlands svf., Norðlenska ehf., Kaupfélag Skagfirðinga svf., Kjötbankinn ehf., Reykjagarður hf. og Matfugl ehf.) er enn til rannsóknar.

Sáttin við Haga er liður í almennri viðleitni Samkeppniseftirlitsins að tryggja að samstarf m.a. kjötvinnslufyrirtækja og matvöruverslana raski ekki samkeppni. Í aðgerðunum felst að aðkoma birgja að merkingum á smásöluverði Haga leggst af á þeim sviðum sem mál þetta tekur til auk þess sem breytingar verða á viðskiptaháttum á matvörumarkaði. Má búast við að eftirlitið beiti sér frekar á þessu sviði og gagnvart fyrirtækjum sem ekki eru hluti af framangreindu stjórnsýslumáli.

Bakgrunnsupplýsingar:

  • Í maí 2008 gaf Samkeppniseftirlitið út skýrslu um viðskiptasamninga birgja og annað samstarf fyrirtækja á matvörumarkaði. Í skýrslunni kom m.a. fram að takmörkuð samkeppni kynni að vera í sölu á forverðmerktum kjötvörum, þ.e. pökkuðu kjöti og öðrum meira unnum kjötvörum (t.d. áleggi, pylsum, kæfum og fleiru) sem eru verðmerktar fyrirfram fyrir verslanir með svokölluðu leiðbeinandi smásöluverði. Í skýrslunni var ekki tekin afstaða til þess hvort um brot á samkeppnislögum væri að ræða heldur boðað að sérstakar stjórnsýslurannsóknir myndu hefjast í kjölfarið til að leggja mat á hvort samkeppnislög hefðu verið brotin.
  • Rannsókn og afmörkun þessa tiltekna máls hófst eftir útgáfu umræddrar skýrslu. Hefur Samkeppniseftirlitið aflað viðamikilla upplýsinga vegna rannsóknarinnar hjá viðkomandi aðilum. Jafnframt hafa gögn sem Samkeppniseftirlitið aflaði í húsleit hjá Högum varpað ljósi á samskipti birgja og Haga vegna forverðmerkinga. Þessi rannsókn leiddi til þess að Samkeppniseftirlitið kynnti Högum og viðkomandi kjötvinnslustöðvum frumniðurstöðu sína um brot á samkeppnislögum í júlí sl.
  • Samkvæmt ákvæðum samkeppnislaga getur Samkeppniseftirlitið lokið málum með sátt ef fyrirtæki sem til rannsóknar eru stíga fram og viðurkenna brot á samkeppnislögum. Slíkur samstarfsvilji og vilji til þess að gera jákvæðar breytingar á hegðun á markaði flýta rannsókn og niðurstöðu mála.
  • Ákvæði 10. gr. samkeppnislaga banna alla samninga eða samstilltar aðgerðir milli fyrirtækja sem raskað geta m.a. verðsamkeppni.
  • Ólögmætir samningar eða samstilltar aðgerðir milli framleiðenda og smásala (lóðrétt samráð) sem lúta að smásöluverði falla ekki undir refsiákvæði samkeppnislaga heldur varða aðeins viðkomandi fyrirtæki stjórnvaldssektum.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.