Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Samkeppniseftirlitið heimilar samstarf vegna samkomulags um úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja

16. desember 2010
snowcap mountain

Samstarfinu sett ítarleg skilyrði

KronupeningarSamkeppniseftirlitið hefur í dag birt ákvörðun þar sem heimilað er samstarf vegna samkomulags um úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja, en samkomulagið var undirritað í gær. Samningsaðilar eru fjármálafyrirtæki og hagsmunasamtök atvinnulífsins, auk fjármálaráðuneytis og efnahags- og viðskiptaráðuneytis.

Samstarf keppinauta á markaði er bannað samkvæmt 10. gr. samkeppnislaga. Samkvæmt 15. gr. sömu laga getur Samkeppniseftirlitið veitt undanþágur frá því banni og bundið slíkt samstarf skilyrðum.

Að mati Samkeppniseftirlitsins liggur fyrir að fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækja hefur miðað hægt. Í umræðuskjali Samkeppniseftirlitsins nr. 2/2009, Bankar og endurskipulagning fyrirtækja – Stefnumörkun, sem gefið var út í desember 2009, er sérstaklega bent á að hagfræðileg rök og reynsla annarra þjóða sýni að nauðsynlegt sé að bregðast hratt við skuldavanda rekstrarhæfra fyrirtækja. Það sé því neytendum og atvinnulífinu til hagsbóta að bankar afskrifi eða minnki skuldir rekstrarhæfra fyrirtækja.

Meðal annars á þessum grunni telur Samkeppniseftirlitið rétt að veita fjármálafyrirtækjum og hagsmunasamtökum fyrirtækja undanþágu til samstarfs vegna samkomulagsins.

Á hinn bóginn lítur Samkeppniseftirlitið svo á að samstarf af þeim toga sem samkomulagið kveður á um geti, einkum til lengri tíma, gefið keppinautum á fjármálamarkaði færi á að samræma verð, viðskiptakjör og vöruframboð til skaða fyrir viðskiptavini og neytendur. Til þess að koma í veg fyrir þetta telur Samkeppniseftirlitið óhjákvæmilegt að setja samstarfinu eftirfarandi skilyrði:

  • Að fjármálafyrirtæki sé þrátt fyrir samkomulagið heimilt að veita viðskiptavinum sínum betri kjör og taka upp viðmið sem eru þeim hagfelldari.
  • Skýrt er kveðið á um að undanþágan veitir ekki rétt til nánari samræmingar á verði og viðskiptakjörum en kveðið er á um í samkomulaginu. Slíkar breytingar á samkomulaginu þarf að bera undir Samkeppniseftirlitið fyrirfram.
  • Settar eru skýrar reglur um samstarf á grundvelli samkomulagsins. Þannig á fulltrúi stjórnvalda að vera viðstaddur samstarfsfundi sem skulu bókaðir. Jafnframt er nauðsynlegt að hvert fjármálafyrirtæki fyrir sig grípi til ráðstafana til að stuðla að því að samkeppnislegur skaði stafi ekki af því samstarfi sem leiðir af samkomulaginu.
  • Undanþágan er tímabundin og gildir til ársloka 2011. Skal við lok hennar gera grein fyrir framkvæmd samstarfsins og hvernig tryggt sé að samstarfinu ljúki.
  • Undanþágan veitir einungis fjármálafyrirtækjum rétt til samstarfs sem ella færi gegn 10. gr. samkeppnislaga. Öðrum aðilum samkomulagsins, s.s. Samtökum atvinnulífsins, er ekki veitt undanþága til samstarfs á sínum vettvangi.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.