
Samkeppniseftirlitið leitar að öflugum og skipulögðum sumarsstarfsmanni á rekstrarsvið stofnunarinnar. Megin viðfangsefni viðkomandi yrði að vinna að skjölun, flokkun og frágang eldri mála stofnunarinnar, sjá um að skrásetja og flokka bókasafn stofnunarinnar og koma að frágangi og skipulagi skjalageymslna ásamt því aðstoða við önnur tilfallandi verkefni á rekstrarsviði. Viðkomandi myndi taka við verkefni sem byrjað var á 2007 en hefur verið í biðstöðu síðastliðin tvö ár.
Grunnmenntun í bókasafns og upplýsingafræðum er æskileg en þó ekki skilyrði. Nauðsynlegt er þó að viðkomandi hafi skilning og áhuga á flokkun og frágangi skjala. Fyrir utan að hafa þekkingu á viðfangsefninu þarf viðkomandi að vera skipulagður, geti unnið sjálfstætt og eiga auðvelt með mannleg samskipti ásamt því að geta snýtt frumkvæði í starfi.
Áhugasömum er bent á að sækja um þetta starf með því að senda tölvupóst á Hilmar Þórðarson eða sækja um á vef Job.is eða Vinnumálastofnunar.
"*" gefur til kynna skyldusvið