Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Alvarlegar samkeppnishindranir geta fylgt samrunum viðskiptabanka

15. apríl 2011
snowcap mountain

BankalogoSamkeppniseftirlitið hefur í dag gefið út umræðuskjal um samkeppni á bankamarkaði. Með því vill Samkeppniseftirlitið hvetja fjármálafyrirtæki og stjórnvöld til að gefa samkeppnismálum gaum við stefnumótun fjármálamarkaðarins og kynna sjónarmið sín um samruna banka.

Eitt af því sem ráða mun úrslitum við endurreisn íslensks atvinnulífs er það hvernig fjármálastarfsemi verður háttað hér á landi. Virk samkeppni á fjármálamarkaði er sérstaklega mikilvæg fyrir bæði atvinnulífið og neytendur. Hún stuðlar m.a. að atvinnuuppbyggingu og samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja.

Samkeppniseftirlitið telur að í stefnumótun fyrir fjármálamarkaðinn þurfi að koma í veg fyrir einsleitni í uppbyggingu og hugarfari og skapa jarðveg fyrir virkan markað og nýsköpun í greininni. Samkeppniseftirlitið geldur varhug við því að stærri viðskiptabankar kaupi eða yfirtaki smærri fjármálafyrirtæki og að hér myndist eða styrkist þægilegur markaður tveggja eða þriggja stærri banka sem búa ekki við hættu á utanaðkomandi samkeppni. Slík markaðsgerð er almenningi og viðskiptalífinu til tjóns.

Helstu niðurstöður skýrslunnar eru:

  • Samþjöppun á bankamarkaði hefur aukist verulega frá árinu 2008 með fækkun fjármálafyrirtækja og yfirtöku stærri banka á innlánum sparisjóða. Reiknaður samþjöppunarstuðull (HHI) er tæp 2.700 stig um þessar mundir en stuðullinn náði ekki 2.000 stigum fyrir hrun. Svo mikil samþjöppun skapar hættu á samkeppnishömlum sem felast í samhæfðri hegðun keppinauta.
  • Aðgangshindranir að bankamarkaði eru miklar og erfitt fyrir neytendur að skipta um banka. Samkeppniseftirlitið telur að nýta eigi það tækifæri sem uppstokkun í kjölfar hrunsins gefur til að auðvelda aðgengi að bankamarkaði og minnka kostnað við flutning viðskiptavina á milli banka. Slíkt eykur samkeppni og gerir minni keppinautum betur kleift að eflast.
  • Bankakerfið er of dýrt miðað við núverandi umfang og hagræðing því nauðsynleg. Rekstrarkostnaður Arion banka, Íslandsbanka og Landsbanka hækkaði um 7,5 milljarða króna á milli áranna 2009 og 2010, eða um 12% að raungildi. Starfsmönnum fjölgaði um 200 á sama tíma.
  • Ná verður fram hagræðingu með öðrum leiðum en samrunum. Samkeppniseftirlitið telur að mjög alvarleg samkeppnisvandamál geti fylgt samrunum viðskiptabanka, a.m.k. í þeim tilvikum þar sem einn eða fleiri stóru bankanna er aðili að slíkum samruna. Í því efni er rétt að benda á að hagræðing sem kann að leiða af samruna er sýnd veiði en ekki gefin. Meirihluti fræðigreina sem skrifaðar hafa verið um áhrif samruna banka benda til óverulegs hagræðis af samruna.
  • Nauðsynlegt er að hafa í huga að aðstæður á fjármálamarkaði geta breyst hratt eins og dæmin sanna. Fjármálamarkaðurinn býr við mikla óvissu og gjaldeyrishöft og fjárhagslegur styrkur bankanna liggur enn ekki fyrir. Þá kunna róttækar breytingar að verða á skipan peningamála sem geta gerbreytt markaðinum.

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins:

Mynd: Páll Gunnar Pálsson forstjóri Samkeppniseftirlitsins„Það er öllum ljóst að nauðsynlegt er að hagræða í bankakerfinu. Vandinn liggur í því hvernig það skuli gert. Rannsóknir sýna að hagræðing við samruna banka er sýnd veiði en ekki gefin. Kjarni málsins er sá að stjórnendur banka þurfa fyrst og fremst að taka til hendinni heima fyrir.“

Samkeppniseftirlitið óskar eftir sjónarmiðum hagsmunaaðila og annarra áhugasamra fyrir 31. maí 2011.

Umræðuskjalið.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.