Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Samkeppniseftirlitið leggur 25 m.kr. stjórnvaldssekt á Forlagið vegna alvarlegra brota á sátt.

4. júlí 2011
snowcap mountain

Samkeppniseftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu í nýrri ákvörðun sinni nr. 24/2011 að Forlagið ehf. hafi brotið skilyrði ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins nr. 8/2008. Forlagið varð til árið 2008 með samruna tveggja fyrirtækja, þ.e. JPV útgáfu ehf. og Vegamóta ehf. Samkeppniseftirlitið sá meinbugi á samrunanum, en samrunaaðilar gerðu sátt við Samkeppniseftirlitið í febrúar 2008 til þess að samruninn gæti átt sér stað og Forlagið orðið til. Tók Forlagið þátt í því að móta skilyrði sem ætlað var að draga úr samkeppnishamlandi áhrifum samrunans og félagið taldi sig geta starfað eftir. Forlagið hefur nú brotið gegn þessum skilyrðum. Samkeppniseftirlitið leggur 25 m.kr. stjórnvaldssekt á Forlagið af þeim sökum.

Forlagið braut gegn skilyrði sem kveður á um bann við birtingu leiðbeinandi endursöluverðs til smásala. Forlagið braut einnig gegn skilyrði um að Forlaginu sé óheimilt að veita endurseljendum afslátt frá heildsöluverði bóka sinna nema Forlagið geti með óyggjandi hætti sýnt fram á kostnaðarlegt hagræði af viðskiptunum og að hagræðið sé í samræmi við afsláttinn.
Gögn málsins leiddu í ljós að fyrir jólin 2009 hafi Forlagið birt smásöluaðilum leiðbeinandi endursöluverð ýmist á pöntunar- og skráningarblöðum sem fylgdu bókasendingum til endursöluaðila eða í vefverslun sinni á heimasíðu félagsins. Lögum samkvæmt ber Forlaginu, sem smásöluaðila, að birta í vefverslun sinni endanlegt verð til neytenda eða með öðrum orðum það verð sem neytendur þurfa að greiða vilji þeir kaupa vöruna. Í staðinn birti Forlagið tvenns konar verð, annars vegar smásöluverð (leiðbeinandi endursöluverð) og hins vegar afsláttarverð, en afsláttarverðið er það verð sem neytendur þurfa að greiða vilji þeir kaupa vöruna (endanlegt verð).

Þá gat Forlagið ekki sýnt fram á með óyggjandi hætti að afsláttarkjör til endursöluaðila hafi verið veitt á grundvelli kostnaðarlegs hagræðis, en kveðið var á um það í skilyrðum sáttarinnar sem Forlagið tók þátt í að móta og gekkst undir árið 2008. Þá var það einnig skilyrði fyrir samrunanum að samræmi þyrfti að vera á milli afsláttarkjara og þess kostnaðarlega hagræðis sem hlytist af viðskiptunum. Skilyrði um kostnaðarlegt hagræði að baki afsláttarkjörum var til þess gert að tryggja jafnræði endursöluaðila gagnvart hinu nýja markaðsráðandi félagi sem stofnaðist með samrunanum 2008. Ennfremur var það mat Samkeppniseftirlitsins að meiri munur væri á þeim afsláttarkjörum sem Forlagið veitti viðskiptavinum sínum en hægt væri að réttlæta með rökum um kostnaðarlegt hagræði eða með öðrum orðum að Forlagið hafi ekki gætt jafnræðis milli viðskiptavina sinna við veitingu afsláttarkjara.

Sjá nánar ákvörðun nr. 24/2011.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og greinar

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

  • 11. maí 2026
  • Fréttir

Eftirlit nauðsynlegt á fákeppnismarkaði

  • 4. maí 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samkeppniseftirlitinu falið að fylgjast með verðlagningu á eldsneyti

  • 30. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

„Gríðarlegir hagsmunir fyrir íslenskt samfélag að það sé samkeppni á fjármálamarkaði“

  • 27. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Sumarstarf fyrir hagfræðinema hjá SKE

  • 22. apríl 2026
  • Fréttir
Semsett mynd/SKE

Samruni Heklu og Bílson – umsagnarferli

  • 20. apríl 2026
  • Fréttir
Samkeppniseftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að samruni Ferro Zink ehf. og Metal ehf. hindri virka samkeppni og skuli því ógiltur.

Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro Zink og Metal

  • 17. apríl 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Greinar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.