Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Samkeppniseftirlitið leggur 40 m.kr. stjórnvaldssekt á Landsbanka Íslands hf. vegna brota á samrunaákvæðum samkeppnislaga

4. júlí 2011
snowcap mountain

Í samkeppnislögum er lagt bann við því að samruni komi til framkvæmda á meðan Samkeppniseftirlitið fjallar um hann, nema til komi sérstakt leyfi Samkeppniseftirlitsins. Jafnframt er skylt að tilkynna samruna til eftirlitsins.  Er þessari reglu ætlað að tryggja að samrunaákvæði samkeppnislaga nái markmiði sínu. Er sérstaklega gert ráð fyrir því í samkeppnislögum að lögð séu viðurlög á fyrirtæki sem brjóta gegn þessari reglu.

Brot LÍ fólst í því að taka yfir sex félög, sem áður voru í eigu Bergeyjar eignarhaldsfélags ehf., og selja öll félögin, að einu undanskildu, til þriðja aðila. Þetta gerði LÍ áður hann tilkynnti Samkeppniseftirlitinu um yfirtökur sínar á félögunum og um sölu á þeim. LÍ braut því gegn skyldu til að tilkynna um samruna skv. samkeppnislögum og banni við að framkvæma samruna áður Samkeppniseftirlitið fjallar um hann. Átti þetta sér stað á árunum 2009 og 2010. Samkeppniseftirlitinu varð kunnugt um þessa gerninga á árinu 2010.

Með vísan til m.a. umfangs og eðlis brotanna telur Samkeppniseftirlitið að hæfilegt sé að sekta LÍ um 40 m.kr.

Í skýrslu Samkeppniseftirlitsins frá 9. júní sl., Samkeppni eftir hrun, er greint frá því að fjárhagsleg endurskipulagning skuldsettra fyrirtækja gangi of hægt og geti það haft slæm áhrif á samkeppni og atvinnustarfsemi. Til að hraða þessu ferli er m.a. nauðsynlegt að fjármálastofnanir og aðrir aðilar virði ákvæði samkeppnislaga.

Bakgrunnsupplýsingar

Í apríl 2009 var gert samkomulag milli LÍ, Magnúsar Kristinssonar, Smáeyjar ehf. og tengdra félaga sem fól í sér að LÍ tæki yfir hlutabréf Bergeyjar eignarhaldsfélags ehf. í tilteknum félögum. Bergey eignarhaldsfélag ehf. var þá að fullu í eigu Smáeyjar ehf. Samkvæmt samkomulaginu yfirtók LÍ hlutabréf í eftirfarandi félögum:

  • Bílaleigu Flugleiða ehf.
  • Toyota á Íslandi hf.
  • M. Kristinssyni ehf.
  • Pizza-Pizza ehf.
  • Sólningu Kópavogi ehf.
  • Bergey fasteignafélagi ehf.

Kaupsamningur um yfirtöku LÍ á félögunum var síðan gerður þann 1. júlí 2009. Samkvæmt LÍ var yfirtakan liður í fullnustugerð á hendur fyrrnefndum aðilum.  Félögin M. Kristinsson ehf., Sólning Kópavogi ehf. og Bergey fasteignafélag ehf. voru síðan öll seld eignarhaldsfélaginu Bifreiðar ehf. þann 4. ágúst 2009. Sama dag seldi LÍ jafnframt félagið Pizza Pizza ehf. til eignarhaldsfélagsins Pizzasmiðjunnar ehf. Bílaleiga Flugleiða var svo seld félaginu Norðurlöndin ehf. þann 26. febrúar 2010. Tilkynning LÍ til Samkeppniseftirlitsins um yfirtöku á dótturfélögum Bergeyjar eignarhaldfélags ehf. er dagsett 16. júní 2010.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.