Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Ekki íhlutun í samruna Síldarvinnslunnar hf. og Bergs-Hugins ehf.

22. apríl 2013
snowcap mountain

Íslenskt fiskiskip í höfnSamkeppniseftirlitinu barst samrunatilkynning um kaup Síldarvinnslunnar hf. á öllu hlutafé í útgerðarfélaginu Bergur-Huginn ehf. Bergur-Huginn rekur útgerð í Vestmannaeyjum og Síldarvinnslan er ein öflugasta útgerð landsins og rekur einnig vinnslu í landi.

Samrunaákvæði samkeppnislaga hafa þann tilgang að tryggja að sú samþjöppun á markaði sem stafað getur af samruna raski ekki samkeppni. Í máli þessu gilda einnig ákvæði laga um stjórn fiskveiða sem ætlað er m.a. að tryggja samkeppni í sjávarútvegi með því að vinna gegn því að aflaheimildir safnist á fáar hendur.

Stærstu eigendur Síldarvinnslunnar eru fyrirtæki sem einnig stunda útgerð og fiskvinnslu. Annars vegar Samherji hf. og hins vegar Gjögur hf. Bæði fyrirtækin eiga fulltrúa í stjórn Síldarvinnslunnar en hvorugt fyrirtækjanna á meirihluta hlutafjár í Síldarvinnslunni. Í ljósi þessa eignarhalds ákvað Samkeppniseftirlitið að víkka út rannsóknina á samrunanum og leggja mat á hvort Samherji (eða eftir atvikum Samherji og Gjögur saman) hefðu yfirráð yfir Síldarvinnslunni. Væri það raunin hefði hinn tilkynnti samruni í raun falið í sér samruna Bergs-Hugins við Síldarvinnsluna, Samherja og Gjögur. Saman hafa þessi fyrirtæki meiri aflahlutdeild en lög um stjórn fiskveiða heimila. Bæði Samherji og Síldarvinnslan hafa staðhæft að Samherji hafi ekki yfirráð yfir Síldarvinnslunni.

Niðurstaða Samkeppniseftirlitsins, ákvörðun nr. 10/2013, er að ekki sé í ljós leitt að Samherji og Gjögur fari með yfirráð yfir Síldarvinnslunni í skilningi samkeppnislaga. Því er í málinu aðeins tekin afstaða til samkeppnislegra áhrifa þess samruna sem felst í kaupum Síldarvinnslunnar á Bergi-Hugin. Telur Samkeppniseftirlitið að sá samruni raski ekki samkeppni. Skiptir í því sambandi m.a. máli að samruninn hefur ekki áhrif á sterka stöðu Síldarvinnslunnar á markaði fyrir uppsjávarfisk og fyrirtækin eru ekki keppinautar í fiskvinnslu. Lýkur þar með rannsókn Samkeppniseftirlitsins á samruna Síldarvinnslunnar og Berg-Hugins.

Framansögð niðurstaða um yfirráð yfir Síldarvinnslunni leiðir til þess að Síldarvinnslan, Samherji og Gjögur eru keppinautar í skilningi samkeppnislaga. Rannsókn málsins hefur leitt í ljós umtalsverða samvinnu milli þessara fyrirtækja í útgerð, fiskvinnslu og sölu afurða. Þá eiga Samherji og Gjögur fulltrúa í stjórn Síldarvinnslunnar. Í ljósi þessa er það niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að óhjákvæmlegt sé að hefja nýtt stjórnsýslumál þar sem tekið verður til athugunar hvort Síldarvinnslan, Samherji og Gjögur hafi brotið gegn banni samkeppnislaga við samkeppnishamlandi samvinnu keppinauta.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.