Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Tilmæli til Bláskógabyggðar og Grímsnes- og Grafningshrepps vegna kaupa á þjónustu við sorphirðu

24. apríl 2013
snowcap mountain

Samkeppniseftirlitið hefur í dag birt ákvörðun nr. 11/2013, Kvörtun Íslenska gámafélagsins ehf. vegna sorphirðufyrirkomulags frístundahúsa í Bláskógabyggð og Grímsnes- og Grafningshreppi. Í ákvörðuninni beinir Samkeppniseftirlitið þeim tilmælum til Bláskógabyggðar og Grímsnes- og Grafningshrepps að sveitarfélögin beiti útboðum, þar sem þeim verður við komið, eða verðkönnunum þegar þjónusta vegna sorphirðu er keypt. Mælst er til þess að gildistími samninga við þjónustuverktaka vegna sorphirðu sé ákvarðaður með hliðsjón af langtímahagsmunum sveitarfélaganna af því að örva samkeppni og þannig tryggja hagkvæma sorphirðu. Þá er mælst til þess að álit Samkeppniseftirlitsins nr. 4/2009, Opinber útboð, samkeppni og samkeppnishindranir – Gátlisti til að forðast ólögmætar samkeppnishindranir, verði haft til hliðsjónar við ákvarðanir um sorphirðu sveitarfélaganna.      

Rannsókn málsins hófst í kjölfar þess að Samkeppniseftirlitinu barst erindi frá Íslenska gámafélaginu ehf. Í erindinu var kvartað undan fyrirkomulagi sorphirðu við frístundahús í sveitarfélögunum í kjölfar útboðs þeirra á sorphirðu. Í erindinu kom fram að í kjölfar útboðsins hafi rekstraraðilum og eigendum frístundahúsa verið gert að beina viðskiptum sínum til þess þjónustuverktaka sem vann útboðið þyrftu þeir á sorphirðuþjónustu að halda. Með sorphirðuþjónustu í þessu samhengi er átt við þá þjónustu þegar sorp er sótt „upp að dyrum“. Íslenska gámafélagið taldi að þetta fyrirkomulag bryti í bága við 10. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005 sem og b. lið 1. mgr. 16. gr. sömu laga. 

Var það mat Samkeppniseftirlitsins að útboð Bláskógabyggðar og Grímsnes- og Grafningshrepps á sorphirðu í sveitarfélögunum hafi ekki raskað samkeppni í skilningi 10. gr. eða b. liðar 1. mgr. 16. gr. samkeppnislaga. Samkeppniseftirlitið beinir hins vegar áður greindum tilmælum til sveitarfélaganna með það að markmiði að tryggja virka samkeppni til framtíðar í útboðum og innkaupum þeirra á þjónustu vegna sorphirðu.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.