Samkeppni Logo

Kaup Grænmetis ehf. á hlutabréfum í Ágæti hf.

21. desember 1999
snowcap mountain

Islenskt_graenmeti_logoSamkeppnisráð hefur úrskurðað (Ákvörðun samkeppnisráðs nr. 44/1999), að miðað við þau gögn sem lögð hafa verið fram vegna kaupa Grænmetis ehf. á hlutabréfum í Ágæti hf., sé ekki ástæða til afskipta samkeppnisyfirvalda vegna kaupanna. Í ákvörðun ráðsins er tekið fram að breytist þær forsendur sem ákvörðunin byggir á, verði málið tekið til meðferðar á ný.

Í nóvember sl. keypi Þórhallur Bjarnason garðyrkjubóndi, og fyrirtæki hans Grænmeti ehf., 95% hlut í grænmetisdreifingunni Ágæti hf. af Búnaðarbankanum. Fyrr á þessu ári hafði Sölufélag garðyrkjumanna svf. haft frumkvæði að því að hluthafar í Ágæti seldu hluti sína í fyrirtækinu til Búnaðarbankans og hafði Sölufélagið jafnframt gert samning við bankann um að Sölufélagið myndi kaupa öll bréfin af bankanum í lok sumars. Ekkert varð af þeim kaupum þar sem bankinn mat það svo að kaup Sölufélagsins á Ágæti kynnu að stríða gegn samrunareglum samkeppnislaga. Hins vegar keypti Þórhallur Bjarnason, garðyrkjubóndi og fyrrverandi stjórnarmaður í Sölufélagi garðyrkjumanna, hlutabréfin af bankanum í gegnum einkahlutafélag sitt Grænmeti.

Fréttatilkynning á PDF formi (PDF skjal – Opnast í nýjum glugga).

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.