Samkeppni Logo

Norrænn samningur um samstarf samkeppnisyfirvalda – Ráðist til atlögu gegn ólögmætu samráði fyrirtækja.

16. mars 2001
snowcap mountain

Í dag, föstudaginn 16. mars, var gengið frá samningi á milli Danmerkur, Íslands og Noregs sem eflir möguleika samkeppnisyfirvalda landanna á aukinni samvinnu. Samningurinn styrkir yfirvöld í að vinna gegn ólögmætu samráði fyrirtækja og öðrum skaðlegum samkeppnishömlum. Mikilvægasta atriði samningsins er að samkeppnisyfirvöld geta skipst á trúnaðarupplýsingum í málum þar sem sameiginlegir hagsmunir eru fyrir hendi. Það á einnig við í samrunamálum.

Samkeppnisyfirvöld á Norðurlöndum eru oft að fást við sömu úrlausnarefni – þess vegna er aukið samstarf nauðsynlegt.

„Við höfum sannreynt að þörf er fyrir aukið samstarf í því skyni að vinna á árangursríkari hátt gegn ólögmætu samráði fyrirtækja. Það á sérstaklega við um samráð, sem á sér stað í fleiri en einu Norðurlandanna. Yfirvöld þurfa því í slíkum málum að geta samræmt málsmeðferð og framkvæmd samkeppnisreglna“, segja forstjórar samkeppnisstofnana í löndunum þremur.

Fréttatilkynning á PDF formi (PDF skjal – Opnast í nýjum glugga).

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.