Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Af „samsiglingum“ og stærðarhagkvæmni

20. ágúst 2014

Mynd af akkeri á skipshliðPistill nr. 3/2014.

Undanfarið hefur verið fjallað í fjölmiðlum um samstarf skipafélaga sem miða eigi að því að auka hagræðingu og draga úr flutningskostnaði. Bryddaði Páll Hermannsson flutningahagfræðingur upp á þessu í aðsendri grein í Viðskiptablaðinu þann 31. júlí sl.

Í frétt í Viðskiptablaði Morgunblaðsins þann 7. ágúst sl. er sagt frá því að alþjóðleg skipafélög hafi verið að „samsigla“ í ríkara mæli til að auka hagræðingu, en hér á landi standi Samkeppniseftirlitið í vegi fyrir því að skipafélög með starfsemi hér á landi geti gert slíkt hið sama. Haft er eftir upplýsingafulltrúa Eimskips að samkeppnisyfirvöld í Evrópu og Ameríku hafi lagt blessun sína yfir slíkt samstarf, en Samkeppniseftirlitið á Íslandi líti málið öðrum augum og þurfi önnur stjórnvöld því að hafa frumkvæði að málinu.

Samkeppniseftirlitið getur heimilað samstarf keppinauta

 

Þessar ályktanir virðast byggðar á einhverjum misskilningi. Staðreyndin er sú að samkvæmt 15. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005 getur Samkeppniseftirlitið veitt undanþágu fyrir samstarfi fyrirtækja og/eða samtaka fyrirtækja sem ella væri ólögmætt.

Skilyrði slíkrar undanþágu eru m.a. þau að samstarfið stuðli að bættri framleiðslu eða dreifingu á vöru eða þjónustu, veiti neytendum hlutdeild í ávinningi sem af samstarfinu hlýst og veiti hlutaðeigandi fyrirtækjum ekki færi á að koma í veg fyrir samkeppni. Að baki þessu býr sú hugsun að í vissum tilvikum geti verið nauðsynlegt fyrir efnahagslífið og hag neytenda að keppinautar starfi saman á tilteknu afmörkuðu sviði.

Samkeppniseftirlitið hefur veitt undanþágur af þessum toga á ýmsum sviðum atvinnulífs. Nefna má að oftar en einu sinni hafa undanþágur verið veittar fyrir samstarfi í sjóflutningum. Dæmi um þetta er ákvörðun nr. 46/2009, Ósk Hf. Eimskipafélags Íslands og Samskipa hf. um undanþágu á grundvelli 15. gr. samkeppnislaga fyrir samstarfi í sjóflutningum á milli Íslands og Norður-Ameríku. Fól samstarfið í sér samning um að Eimskip flytti fyrir Samskip ákveðið magn af varningi á ári á flutningaleiðinni. Var undanþágan tímabundin, en sambærilegt samstarf hefur síðar verið heimilað. Nánari afstaða verður tekin til þessa samstarfs í rannsókn á fyrirtækjunum tveimur, sem nú stendur yfir og fjallað hefur verið um opinberlega.

Í umfjöllun Samkeppniseftirlitsins um þessi mál eru sambærileg sjónarmið lögð til grundvallar og gilda í evrópskum rétti, að teknu tilliti til samkeppnisaðstæðna á hverjum stað. Samkeppnisyfirvöld í Evrópu hafa haft til rannsóknar ýmis mál sem varða ólögmætt samráð í sjóflutningum. Veitt hefur verið almenn undanþága fyrir skipafélög að vinna saman í hagræðingarskyni. Undanþágan er þó háð því að viðkomandi félög hafi ekki meira en 30% markaðshlutdeild í áætlunarsiglingum milli tiltekinna áfangastaða. Einnig má samvinnan ekki fela í sér verðsamráð, markaðsskiptingu eða samkeppnishamlandi takmörkun á flutningaframboði.

Án samkeppni skilar stærðarhagkvæmni sér ekki til neytenda

Ákallið um aukna stærðarhagkvæmni er krefjandi úrlausnarefni í fjölmörgum málum á vettvangi Samkeppniseftirlitsins. Í úrlausnum sínum leitast Samkeppniseftirlitið við að skapa svigrúm til stærðarhagkvæmni, án þess að fórnað sé hagsmunum almennings og neytenda af samkeppni. Þetta er mikilvægt, því án samkeppni er hætt við að ábatinn af stærðarhagkvæmninni komi einungis hlutaðeigandi keppinautum til góða. Neytendur væru síður líklegir til að öðlast sanngjarna hlutdeild í ábatanum. Þvert á móti væri hætta á að þeir stæðu frammi fyrir hærra verði vegna minnkandi samkeppni.

Fjallað er sérstaklega um þetta í tillögum verkefnisstjórnar samráðsvettvangs stjórnvalda og atvinnulífs um aukna hagsæld, sem birtar voru í maí 2013 og nálgast má á www.samradsvettvangur.is. Þar er bent á mikilvægi stærðarhagkvæmni til þess að auka framleiðni efnahagslífsins. Vegna smæðar markaða eigi fyrirtæki oft erfitt með að nýta stærðarhagkvæmni. Hins vegar sé samkeppni veigamesti einstaki þátturinn til að stuðla að aukinni framleiðni. Samkeppni dragi úr sóun og leiði til minni framleiðslukostnaðar. Til að stuðla að hámarks framleiðni þurfi að finna rétt jafnvægi milli samkeppni og stærðarhagkvæmni. Verkefnisstjórnin bendir sérstaklega á að ábati neytenda af stærðarhagkvæmni aukist ekki nema stærðarhagkvæmninni fylgi samkeppni.

Taka má heilshugar undir þetta.

Lokaorð

Af framangreindu er ljóst að núgildandi samkeppnislög útiloka ekki samstarf skipafélaga í sjóflutningum, eins og lesa má út úr umfjöllun fjölmiðla. Þvert á móti gera samkeppnislög ráð fyrir því að unnt sé að heimila slíkt samstarf. Forsenda þess að Samkeppniseftirlitið heimili samstarfið er að hlutaðeigandi fyrirtæki geti sýnt fram á ábatann og að neytendur og atvinnulífið njóti hans. Í okkar litla samfélagi er brýnt að standa vörð um almannahagsmuni að þessu leyti.

Standi vilji hins vegar til þess að efna með samstarfi til stærðarhagkvæmni sem kemur einungis hlutaðeigandi fyrirtækjum til góða, en skaðar neytendur, þyrfti atbeina stjórnvalda til þess að breyta samkeppnislögum og/eða áherslum Samkeppniseftirlitsins sem leiða af lögunum.

Páll Gunnar Pálsson

forstjóri Samkeppniseftirlitsins

[Pistill þessi var birtur sem grein í Morgunblaðinu þann 16. ágúst 2014.]

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.