Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Ekki forsendur til íhlutunar vegna kaupa 365 miðla ehf. á öllum hlutum í Konunglega kvikmyndafélaginu ehf.

28. ágúst 2014
snowcap mountain

Myndatökuvél í sjónvarpsstúdíóiSamkeppniseftirlitið hefur í dag birt ákvörðun nr. 25/2014, Samruni 365 miðla ehf. og Konunglega kvikmyndafélagsins ehf. Í ákvörðuninni er fjallað um kaup 365 miðla á öllum hlutum Konunglega kvikmyndafélagsins, en síðarnefnda félagið var stofnað í nóvember 2013 og hóf útsendingar sjónvarpsstöðvanna Miklagarðs og Bravó í mars á þessu ári.

Samhliða því að meta áhrif samruna á samkeppni, ber Samkeppniseftirlitinu að leggja mat á hvort samkeppni hafi skaðleg áhrif á fjölræði og fjölbreytni í fjölmiðlum, í þeim tilvikum þar sem a.m.k. ein fjölmiðlaveita er aðili. Svo er í þessu tilviki. Kveðið er á um þetta 62. gr. b í lögum um fjölmiðla nr. 38/2011.

Við rannsókn málsins aflaði Samkeppniseftirlitið upplýsinga og sjónarmiða frá samrunaaðilum og keppinautnum þeirra um samrunann. Einnig var aflað umsagnar frá fjölmiðlanefnd, lögum samkvæmt.

Samkeppniseftirlitið kemst að þeirri niðurstöðu í málinu að samruninn hafi ekki skaðleg áhrif á samkeppni eða fjölræði og fjölbreytni í fjölmiðlum. Niðurstaðan byggist m.a. á því að tekjur Konunglega kvikmyndafélagsins á fyrstu fimm mánuðum þessa árs gáfu til kynna að hlutdeild félagsins á þeim mörkuðum sem það starfaði væri vart merkjanleg. Þannig hafi samruninn ekki í för með sér aukningu á hlutdeild 365 miðla á mörkuðum málsins. Ekki eru að öðru leyti forsendur til að aðhafast vegna samrunans.

Í ákvörðuninni er þó ítrekað það sem fram kemur í ákvörðun þess nr. 34/2013, Kaup 365 miðla ehf. á eignum D3 Miðla ehf., að staða 365 miðla á ýmsum undirmörkuðum fjölmiðlamarkaðar er mjög sterk. Fyrirtækinu ber því að gæta vel að sér, enda geta samningar og önnur hegðun þeirra orðið til þess að hindra að keppinautar þeirra nái að vaxa og dafna og efli þar með samkeppni. Það mál sem hér er til umfjöllunar er hins vegar ekki vettvangur fyrir Samkeppniseftirlitið til þess að grípa til aðgerða vegna þessa.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og greinar

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

  • 11. maí 2026
  • Fréttir

Eftirlit nauðsynlegt á fákeppnismarkaði

  • 4. maí 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samkeppniseftirlitinu falið að fylgjast með verðlagningu á eldsneyti

  • 30. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

„Gríðarlegir hagsmunir fyrir íslenskt samfélag að það sé samkeppni á fjármálamarkaði“

  • 27. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Sumarstarf fyrir hagfræðinema hjá SKE

  • 22. apríl 2026
  • Fréttir
Semsett mynd/SKE

Samruni Heklu og Bílson – umsagnarferli

  • 20. apríl 2026
  • Fréttir
Samkeppniseftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að samruni Ferro Zink ehf. og Metal ehf. hindri virka samkeppni og skuli því ógiltur.

Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro Zink og Metal

  • 17. apríl 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Greinar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.