Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Nýlegar breytingar á verklagi tiltekinna sveitarfélaga við söfnun á pappír og pappa í Blátunnur hindrar samkeppni til tjóns fyrir heimilin/íbúana

6. nóvember 2014
snowcap mountain

Samkeppniseftirlitið birtir í dag álit sem beint er til sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi og umhverfis- og auðlindaráðherra þar sem þessi stjórnvöld eru hvött til að beita sér fyrir aukinni samkeppni á markaði fyrir meðhöndlun endurvinnanlegs úrgangs, einkum pappírs og pappa.

Í álitinu er m.a. komist að þeirri niðurstöðu að innleiðing sveitarfélaganna á söfnun á pappír og pappa frá heimilum í sk. Blátunnur hafi leitt til röskunar á samkeppni. Umrædd sveitarfélög, önnur en Reykjavíkurborg, hafa komið því svo fyrir að íbúum þeirra er nú gert skylt að kaupa þjónustu sem lýtur að söfnun á pappír og pappa af sveitarfélögunum sjálfum í formi Blátunnu. Þjónustu einkafyrirtækja, sem í upphafi höfðu frumkvæði að slíkri þjónustu sem hér um ræðir, og þar með samkeppni á þessu sviði, hefur verið rutt úr vegi í umræddum sveitarfélögum. Í Reykjavík hefur verið þrengt að þjónustu einkafyrirtækja og samkeppni skert.

Jafnframt er það álit Samkeppniseftirlitsins að ákvæði laga nr. 53/2003 um meðhöndlun úrgangs gangi gegn markmiðum samkeppnislaga og torveldi samkeppni í viðskiptum með því að gera sveitarfélögum kleift að viðhalda framangreindu fyrirkomulagi án tillits til samkeppnissjónarmiða. Með því fara íbúar sveitarfélaganna á mis við kostnaðarlegt hagræði og framþróun sem samkeppni á umræddu sviði hefði annars í för með sér.

 Þá er bent á að samkeppnisstaða einkafyrirtækja á þessu sviði sé skekkt þar sem sveitarfélög og byggðasamlögð þeirra eru m.a. undanþegin tekjuskatti, auk þess sem Reykjavíkurborg innheimtir ekki virðisaukaskatt fyrir þá þjónustu sem felst í Blátunnunni.

Að mati Samkeppniseftirlitsins er mikilvægt að tryggt sé að íbúar sveitarfélaga fái að njóta þess hagræðis og nýsköpunar sem virk samkeppni leiðir til á umræddu sviði. Er það mat Samkeppniseftirlitsins að ná megi töluverðri hagræðingu og sama eða betri árangri í endurnotkun og endurvinnslu með því að virkja samkeppni. Rannsóknir hafa sýnt að útboð á þjónustunni eða frjáls samkeppni leiði til allt að 10-33,5% lægra verðs fyrir almenna sorphirðu.

Á grundvelli framangreinds er tilmælum beint til viðkomandi sveitarfélaga og annarra stjórnvalda um að beita sér fyrir breyttu skipulagi á umræddum verkefnum í því skyni að koma í veg fyrir samkeppnishindranir á markaðnum sem um ræðir og auðvelda aðgengi nýrra keppinauta að honum.

Tildrög álits og málavextir

Tilefni þessa álits eru fyrri mál sem Samkeppniseftirlitið hefur fjallað um og varða meðhöndlun úrgangs, ábendingar frá íbúum sveitarfélaganna og kvörtun Gámaþjónustunnar hf. til Samkeppniseftirlitsins frá 1. mars 2013.

Þau sveitarfélög sem álitið varðar eru eigendur sorpsamlaganna SORPU bs. og Sorpstöðvar Suðurlands bs. Kvartanir vegna Blátunnunnar snúa annars vegar að þeirri kröfu sveitarfélaganna að íbúar, í öðrum sveitarfélögum en Reykjavík, kaupi umrædda þjónustu af sveitarfélögunum sjálfum og að endurvinnsluefni, þ.e. pappír og pappi, skili sér til SORPU, eftir atvikum í gegnum Sorpstöð Suðurlands. Íbúar þessara sveitarfélaga þurfa því að greiða fyrir þjónustuna sem felst í Blátunnunni hvort sem þeir vilja nýta sér hana eða ekki. Hins vegar er kvartað undan framkvæmd Reykjavíkurborgar við kynningu á þeim möguleikum sem íbúum borgarinnar standa til boða, þ.e. að kaupa Blátunnuna, skila pappír og pappa í grenndargám eða semja við einkaaðila á markaði um leigu á endurvinnslutunnum og söfnun á pappír og pappa.

Í framangreindri kvörtun Gámaþjónustunnar var farið fram á að Samkeppniseftirlitið beitti bindandi íhlutun í málinu á grundvelli b. liðar 1. mgr. 16. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005 vegna háttsemi sveitarfélaganna. Í ljósi ákvæða laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs, sem m.a. kveða á um að sveitarstjórn skuli bera ábyrgð á flutningi heimilisúrgangs, telur Samkeppniseftirlitið sér ekki fært að vera með bindandi íhlutun í málinu. Af þeim sökum lýkur meðferð málsins með áliti og tilmælum.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og greinar

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

  • 11. maí 2026
  • Fréttir

Eftirlit nauðsynlegt á fákeppnismarkaði

  • 4. maí 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samkeppniseftirlitinu falið að fylgjast með verðlagningu á eldsneyti

  • 30. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

„Gríðarlegir hagsmunir fyrir íslenskt samfélag að það sé samkeppni á fjármálamarkaði“

  • 27. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Sumarstarf fyrir hagfræðinema hjá SKE

  • 22. apríl 2026
  • Fréttir
Semsett mynd/SKE

Samruni Heklu og Bílson – umsagnarferli

  • 20. apríl 2026
  • Fréttir
Samkeppniseftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að samruni Ferro Zink ehf. og Metal ehf. hindri virka samkeppni og skuli því ógiltur.

Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro Zink og Metal

  • 17. apríl 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Greinar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.