Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Hæstiréttur staðfestir 80 milljóna króna sekt á móðurfélag Síldar og fisks og Matfugls

27. nóvember 2014
snowcap mountain

Tvö svín sofandiMeð dómi sínum í dag féllst Hæstiréttur Íslands á þá niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins (ákvörðun nr. 36/2011) sem staðfest var í áfrýjunarnefnd samkeppnismála (nr. 13/2011) að sekta bæri móðurfélag Síldar og fisks ehf. og Matfugls ehf. fyrir ólögmætt lóðrétt samráð félaganna við Bónus um smásöluverð og afslátt af því í verslunum Bónuss. Hafi markmið samráðsins verið að draga virkri samkeppni og hafi sú orðið raunin. Telur Hæstiréttur ekki tilefni til að hrófla við fjárhæð sektanna. 

Forsögu dóms þessa má rekja til rannsóknar Samkeppniseftirlitsins á svokölluðum forverðmerkingum á kjötvörum, en um árabil tíðkaðist að kjötvinnslufyrirtæki verðmerktu vörur sínar fyrir verslanir. Á árinu 2010 gerði Samkeppniseftirlitið sátt við Haga og sex kjötvinnslufyrirtæki vegna málsins, þar sem umrædd fyrirtæki viðurkenndu brot, greiddu sektir og skuldbundu sig til að láta af forverðmerkingum á kjötvörum. Nánari upplýsingar um breytingar verðmerkingum á kjötvörum sem af málinu leiddu má finna á hér

Síld og fiskur og Matfugl sættu hins vegar ekki sinn hluta málsins. Á árinu 2011 tók Samkeppniseftirlitið síðan ákvörðun um brot fyrirtækjanna og sektaði móðurfélag þeirra, Langasjó ehf., um 80 m.kr. Áfrýjunarnefnd staðfesti ákvörðunina, en Héraðsdómur Reykjavíkur felldi úr gildi úrskurð áfrýjunarnefndar með skírskotun til þess að málsmeðferð gagnvart móðurfélaginu Langasjó hefði verið ábótavant og að Samkeppniseftirlitinu hefði verið óheimilt að leggja stjórnvaldssekt á Langasjó vegna brota dótturfélaganna. 

Hæstiréttur hefur nú snúið dómi héraðsdóms, eins og að framan greinir. Telur Hæstiréttur að ekki hafi verið brotið gegn málsmeðferðarreglum stjórnsýsluréttar og að heimilt hafi verið að leggja stjórnvaldssekt á móðurfélagið. Þá eru Langisjór og dótturfélög þess dæmd til að greiða Samkeppniseftirlitinu 4 m.kr. í málskostnað.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.