Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Héraðsdómur Reykjavíkur staðfestir sekt á SORPU bs. vegna misnotkunar á markaðsráðandi stöðu

16. janúar 2015
snowcap mountain

Héraðsdómur Reykjavíkur staðfestir sekt á SORPU bs. vegna misnotkunar á markaðsráðandi stöðu Í desember 2012 sektaði Samkeppniseftirlitið SORPU bs. um 45 milljónir kr. fyrir brot á samkeppnislögum. Samkvæmt ákvörðuninni (nr. 34/2012) braut SORPA bs. (sem er byggðasamlag sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu) gegn samkeppnislögum með því að misnota markaðsráðandi stöðu sína á markaði fyrir flokkun og meðhöndlun úrgangs. Þetta gerði SORPA með því að veita eigendum sínum, þ.e. sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu, og Sorpstöð Suðurlands bs. hærri afslætti en öðrum viðskiptavinum, s.s. sorphirðufyrirtækjum, jafnvel þó fyrirtækin kæmu með meira magn af sorpi en sveitarfélögin í móttökustöð SORPU í Gufunesi. Með heimild í samkeppnislögum beindi Samkeppniseftirlitið þeim fyrirmælum til SORPU að byggðasamlagið endurskoðaði gjaldskrá fyrir þjónustu sína og viðskiptasamninga sína í samræmi við ákvæði samkeppnislaga.

SORPA kærði ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála og krafðist aðallega ógildingar ákvörðunarinnar en til vara að sekt vegna brotsins yrði felld niður eða lækkuð verulega. Byggði fyrirtækið m.a. á því að starfsemi opinberra fyrirtækja eins og SORPU félli ekki undir samkeppnislög.

Í mars 2013 staðfesti áfrýjunarnefnd samkeppnismála ákvörðun Samkeppniseftirlitsins. Í úrskurðinum komst áfrýjunarnefndin m.a. að þeirri niðurstöðu að enginn vafi leiki á því að SORPA er fyrirtæki í skilningi samkeppnislaga og að ákvæði sérlaga takmarki ekki heimildir samkeppnisyfirvalda til að beita bannákvæðum samkeppnislaga gagnvart SORPU. Féllst nefndin ekki á kröfu SORPU um lækkun sektar vegna brotstins.

SORPA skaut úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála til dómstóla og í dag kvað Héraðsdómur Reykjavíkur upp dóm í málinu. Var staðfest sú niðurstaða að SORPA hafi með háttsemi sinni misnotað markaðsráðandi stöðu sína með því að mismuna viðskiptavinum sínum með ólíkum afsláttarkjörum í sams konar viðskiptum, í formi aukinna afslátta til eigenda sinna og Sorpstöðvar Suðurlands bs. Þetta brot SORPU hefði raskað möguleikum annarra aðila til að keppa við hið opinbera fyrirtæki. Dómstóllinn féllst ekki á kröfu SORPU um niðurfellingu eða lækkun sektar. Er í því sambandi m.a. bent á að brot SORPU hafi ekki verið smávægilegt og að fyrirtækið hafi ekki haft gildar ástæður til að telja sig undanþegið samkeppnislögum.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.