Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Sjálfstæði Mílu aukið vegna sameiningar Símans og Skipta

28. janúar 2015
snowcap mountain

Í tilefni af sameiningu Skipta hf. og Símans hf. hafa félögin skuldbundið sig gagnvart Samkeppniseftirlitinu til þess að auka sjálfstæði Mílu ehf. sem rekstraraðila grunnfjarskiptakerfis og tryggja með því að markmið ákvörðunar nr. 6/2013, Breytingar á skipulagi Skiptasamstæðunnar, nái fram að ganga. Síminn og Míla hafa gert sátt við Samkeppniseftirlitið sem miðar að þessu. 

Fyrri ákvörðun, nr. 6/2013 

Samkvæmt fyrrgreindri ákvörðun, nr. 6/2013, skuldbundu Skipti sig til að gera umfangsmiklar breytingar á skipulagi og háttsemi Skiptasamstæðunnar í því skyni að efla samkeppni. Með þeirri ákvörðun lauk rannsókn á nokkrum kvörtunum sem keppinautar Símans höfðu beint til Samkeppniseftirlitsins. Rannsóknin beindist að því hvort Síminn hefði brotið gegn banni samkeppnislaga við misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Í ákvörðuninni var höfð hliðsjón af eldri málum, þar sem Síminn og fyrirrennarar hans höfðu verið taldir misnota markaðsráðandi stöðu sína. 

Í ákvörðun nr. 6/2013 var í fyrsta sinn kveðið á um skýran og afgerandi aðskilnað milli annars vegar grunnkerfa samstæðunnar og þjónustu við fjarskiptafyrirtæki sem tengist þessum grunnkerfum, og hins vegar smásölustarfsemi Símans. Samkvæmt ákvörðuninni voru Skipti og dótturfélög bundin af ítarlegum skilyrðum sem tryggja áttu þetta og vinna þannig gegn því að staða Skipta í grunnfjarskiptum yrði nýtt til þess að skapa fyrirtækinu óeðlilegt samkeppnisforskot. Þannig var leitast við að tryggja að Síminn og keppinautar hans sætu við sama borð þegar kemur að aðgangi að grunnfjarskiptakerfum og kaupum á fjarskiptaþjónustu af samstæðunni á heildsölustigi. Sjá nánari umfjöllun um ákvörðunina hér. 

Breytingarnar nú 

Með sameiningu Skipta og Símans verða breytingar á samstæðunni sem kalla á breytingar á fyrrgreindri ákvörðun. Í stað þess að Síminn og Míla séu systurfélög undir móðurfélaginu Skiptum, verður Míla nú dótturfélag Símans. Af þessum sökum er nauðsynlegt að gera m.a. eftirfarandi breytingar á fyrri ákvörðun: 

  • Sjálfstæði stjórnar Mílu gagnvart Símanum er styrkt. Þannig skulu stjórnarmenn Mílu verða óháðir Símanum og tengdum félögum. Þó er heimilt að minnihluti hinna óháðu stjórnarmanna Mílu sitji jafnframt í stjórn Símans, en um þátttöku þeirra í störfum stjórnar Mílu gilda strangar reglur. 
  • Gerð er krafa um fullan aðskilnað í húsnæði innan ákveðins aðlögunartíma. – Heimildir Mílu til að leita stoðþjónustu til móðurfélags eru takmarkaðar frá fyrri sátt. 
  •  Sjálfstæði eftirlitsnefndar er styrkt. Í núverandi eftirlitsnefnd situr starfsmaður móðurfélags Mílu, en með breytingunni verður það óheimilt. 

Eftirlitsnefnd um jafnan aðgang fjarskiptafyrirtækja að kerfum, sem komið var á fót með ákvörðun nr. 6/2013, er ætlað að fylgja því eftir að framangreind styrking fái greiðan framgang og tryggja hagsmuni viðskiptavina Mílu á aðlögunartíma hinna breyttu skuldbindinga Símasamstæðunnar. 

Samkeppniseftirlitið mun á næstunni birta ákvörðun á heimasíðunni þar sem nánari grein er gerð fyrir framangreindum breytingum.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.