Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Héraðsdómur Reykjavíkur staðfestir sekt á Valitor vegna alvarlegra samkeppnislagabrota

6. maí 2015
snowcap mountain

Í apríl 2013 sektaði Samkeppniseftirlitið Valitor hf. um 500 milljónir króna fyrir misnotkun á markaðsráðandi stöðu og brot á skilyrðum fyrri ákvörðunar eftirlitsins. Var félagið talið hafa misnotað markaðsráðandi stöðu sína með aðgerðum sem beindust gegn keppinautum félagsins á markaði fyrir færsluhirðingu. Háttsemi Valitors fólst í því að fyrirtækið verðlagði þjónustu sína í færsluhirðingu vegna debetkorta undir breytilegum kostnaði á árunum 2007 og 2008. Með þessari undirverðlagningu var félagið líklegra til að fá samninga við söluaðila um færsluhirðingu vegna kreditkorta sem talin er arðsamari þjónusta. Var umfang þessarar undirverðlagningar verulegt. Fól háttsemin einnig í sér brot á 54. gr. EES-samningsins. 

Samkeppniseftirlitið komst einnig að þeirri niðurstöðu að Valitor hefði brotið gegn tveimur skilyrðum sem félagið hafði skuldbundið sig til að hlíta með sátt við Samkeppniseftirlitið sem birt var í ákvörðun nr. 4/2008. Í brotinu fólst m.a. að Valitor misnotaði trúnaðarupplýsingar um söluaðila í viðskiptum við keppinauta sína í færsluhirðingu sem félagið hafði aðgang að vegna stöðu sinnar í útgáfu VISA greiðslukorta hér á landi. 

Valitor kærði ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem staðfesti hana í heild sinni í október 2013. Var það mat nefndarinnar að misnotkun Valitors á markaðsráðandi stöðu sinni og brot á fyrrgreindu skilyrði í eldri ákvörðun séu alvarleg. Var vísað til þess að notkun greiðslukorta í viðskiptum með vöru og þjónustu sé mjög almenn og víðtæk hér á landi. Í ljósi þessa og mikilvægis þessa markaðar fyrir neytendur og atvinnulífið skipti miklu að öll verðmyndun sé eðlileg og minni keppinautar séu ekki með óeðlilegum hætti hindraðir í að veita samkeppnislegt aðhald.

 Valitor skaut úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála til Héraðsdóms Reykjavíkur sem kvað upp dóm í dag í málinu. Er þar komist að þeirri niðurstöðu að Valitor hafi af ásetningi framið alvarleg brot á samkeppnislögum. Hafi brotin að auki verið ítrekuð að hluta til. Héraðsdómur taldi hins vegar að brot Valitors hefðu tekið til skemmra tímabils en lagt var til grundvallar hjá áfrýjunarnefnd. Sökum þessa var sekt lækkuð og hún ákveðin 400 milljónir króna. Er það hæsta sekt sem dómstólar hafa dæmt í málum sem varða misnotkun á markaðsráðandi stöðu.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og greinar

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

  • 11. maí 2026
  • Fréttir

Eftirlit nauðsynlegt á fákeppnismarkaði

  • 4. maí 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samkeppniseftirlitinu falið að fylgjast með verðlagningu á eldsneyti

  • 30. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

„Gríðarlegir hagsmunir fyrir íslenskt samfélag að það sé samkeppni á fjármálamarkaði“

  • 27. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Sumarstarf fyrir hagfræðinema hjá SKE

  • 22. apríl 2026
  • Fréttir
Semsett mynd/SKE

Samruni Heklu og Bílson – umsagnarferli

  • 20. apríl 2026
  • Fréttir
Samkeppniseftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að samruni Ferro Zink ehf. og Metal ehf. hindri virka samkeppni og skuli því ógiltur.

Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro Zink og Metal

  • 17. apríl 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Greinar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.