Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Ekki forsendur til íhlutunar vegna yfirtöku Landsbankans á Sparisjóði Norðurlands

4. september 2015
snowcap mountain

Með ákvörðun nr. 23/2015, Yfirtaka Landsbanka hf. á Sparisjóði Norðurlands ses., hefur Samkeppniseftirlitið komist að þeirri niðurstöðu að ekki séu forsendur til íhlutunar vegna yfirtöku Landsbankans á Sparisjóði Norðurlands.

Samkeppniseftirlitið hefur í fyrri úrlausnum sínum fært fyrir því rök að tilvist sparisjóða geti falið í sér tækifæri til aukinnar samkeppni, t.d. með því að eignir þeirra, starfsleyfi og viðskiptavild nýtist til uppbyggingar á nýju afli sem veitt getur samkeppnisaðhald. Vísa má í þessu sambandi m.a. til skýrslu Samkeppniseftirlitsins nr. 1/2013, Fjármálaþjónusta á krossgötum. Það hefur hins vegar verið á ábyrgð m.a. eigenda sparisjóða að grípa til nauðsynlegra ráðstafana til þess að stuðla að slíku samkeppnisaðhaldi almenningi og atvinnulífinu til hagsbóta.

Aukin samþjöppun á fjármálamarkaði gefur til kynna að þessi samruni hafi óheppileg áhrif á samkeppni á fjármálamarkaði. Til viðbótar liggur ekkert fyrir í málinu sem gefur til kynna að önnur sjónarmið eigi við um þennan samruna heldur en lögð hafa verið til grundvallar í eldri málum þegar stór viðskiptabanki hefur yfirtekið sparisjóð.

Í þessu máli er hins vegar byggt á því að sjónarmið um fyrirtæki á fallanda fæti eigi við. Það leiði til þess að ógilding samruna myndi í raun leiða til sömu niðurstöðu. Það er mat Samkeppniseftirlitsins að samrunaaðilar hafi sýnt fram á að þessi sjónarmið eigi við í málinu. Kjarni þeirrar niðurstöðu er eftirfarandi:

– Sparisjóðurinn uppfyllir ekki lagaskilyrði starfsleyfisskylds fjármálafyrirtækis. Honum er ómögulegt af eigin rammleik að uppfylla eiginfjárkröfur Fjármálaeftirlitsins.

– Stærsti stofnfjáreigandinn í sjóðnum, ríkissjóður, sem fer með tæplega 80% hlut í sjóðnum, hefur alfarið hafnað því að leggja sparisjóðnum til fé. Meðal annars þess vegna voru kröfuhafar ekki reiðubúnir til að koma að lausn málsins.

– Sparisjóðurinn greip til ráðstafana til þess að fá þriðju aðila, aðra en viðskiptabankana þrjá, til að leggja sjóðnum til fé og gerast eigendur að sjóðnum. Það er mat Samkeppniseftirlitsins að allir raunhæfir bjóðendur hafi komið til skoðunar þrátt fyrir að annmarkar hafi verið á kynningu sölutilrauna.

– Annmarkar á söluferlinu, bæði tímafrestum og skilyrðum gagnvart einstökum fjárfestum, breyta ekki niðurstöðu málsins. Ræður þar miklu að bjóðendur höfðu þekkingu á málinu vegna aðkomu að sölutilraunum annarra sparisjóða, auk þess sem þeir sögðu sig frá málinu áður en reynt hafði til fullnustu á tímafresti. Þá hafði einn hinna mögulegu fjárfesta ekki sýnt fram á hæfi sitt til að fara með virkan eignarhlut í fjármálafyrirtæki, þrátt fyrir að FME hefði leiðbeint honum þar um.

– Af sjónarmiðum FME verður ráðið að stofnunin muni beita valdheimildum sínum samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, verði ekki af þessum samruna.

Með vísan til framangreinds telur Samkeppniseftirlitið ekki forsendur til íhlutunar vegna samrunans. Nánari upplýsingar um þessa niðurstöðu er að finna í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.