Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Hæstiréttur Íslands hækkar sektir á Valitor í 500 milljónir króna, vegna alvarlegra brota á samkeppnislögum

28. apríl 2016
snowcap mountain

Hæstiréttur Íslands hefur í dag kveðið upp dóm, þar sem komist er að þeirri niðurstöðu að Valitor hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína með aðgerðum sem beindust að keppinautum félagsins á markaði fyrir færsluhirðingu. Jafnframt hafi Valitor brotið gegn tveimur skilyrðum sem félagið hafði skuldbundið sig til að hlíta með sátt við Samkeppniseftirlitið í fyrra máli. Hins vegar telur dómurinn að hækka beri þær sektir semfyrirtækið var dæmt til að greiða í héraðsdómi. Er sektin þannig hækkuð úr 400 m.kr. í 500 m.kr., eins og kveðið var á um í úrlausnum Samkeppniseftirlitsins og áfrýjunarnefndar samkeppnismála.

Til rökstuðnings hækkun sekta byggir Hæstiréttur m.a. á því að brot fyrirtækisins hafi snert allan almenning í landinu, auk þess sem vísað er til þess að fjárhagslegur styrkleiki Valitors og ávinningur af starfseminni á brotatímabilinu hafi verið verulegur. Jafnframt er litið til þess að stjórnvaldssekt í fyrra máli hafi ekki skilað þeim árangri að Valitor léti af samkeppnisbrotum. Er þetta hæsta sekt sem lögð hefur verið á íslenskt fyrirtæki vegna misnotkunar á markaðsráðandi stöðu.

Samkvæmt dóminum ber Valitor að greiða Samkeppniseftirlitinu 4 milljónir króna í málskostnað.

Tildrög dómsins eru þau að í apríl 2013 sektaði Samkeppniseftirlitið Valitor hf. um 500 milljónir króna fyrir misnotkun á markaðsráðandi stöðu og brot á skilyrðum fyrri ákvörðunar eftirlitsins. Var félagið talið hafa misnotað markaðsráðandi stöðu sína með aðgerðum sem beindust gegn keppinautum félagsins á markaði fyrir færsluhirðingu. Háttsemi Valitors fólst í því að fyrirtækið verðlagði þjónustu sína í færsluhirðingu vegna debetkorta undir breytilegum kostnaði. Með þessari undirverðlagningu var félagið líklegra til að fá samninga við söluaðila um færsluhirðingu vegna kreditkorta sem talin er arðsamari þjónusta. Var umfang þessarar undirverðlagningar verulegt. Fól háttsemin einnig í sér brot á 54. gr. EES-samningsins. 

Samkeppniseftirlitið komst einnig að þeirri niðurstöðu að Valitor hefði brotið gegn tveimur skilyrðum sem félagið hafði skuldbundið sig til að hlíta með sátt við Samkeppniseftirlitið sem birt var í ákvörðun nr. 4/2008. Í brotinu fólst m.a. að Valitor notaði trúnaðarupplýsingar um söluaðila í viðskiptum við keppinauta sína í færsluhirðingu sem félagið hafði aðgang að vegna stöðu sinnar í útgáfu VISA greiðslukorta hér á landi. 

Valitor kærði ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem staðfesti hana í heild sinni í október 2013. Var það mat nefndarinnar að misnotkun Valitors á markaðsráðandi stöðu sinni og brot á fyrrgreindu skilyrði í eldri ákvörðun hafi verið alvarleg. Valitor skaut úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála til Héraðsdóms Reykjavíkur. Komst héraðsdómur að þeirri niðurstöðu að Valitor hefði af ásetningi framið alvarleg brot á samkeppnislögum. Hafi brotin að auki verið ítrekuð að hluta til. Héraðsdómur taldi hins vegar að brot Valitors hefðu tekið til skemmra tímabils en lagt var til grundvallar hjá áfrýjunarnefnd. Sökum þessa var sekt lækkuð og hún ákveðin 400 milljónir króna.

Valitor og Samkeppniseftirlitið stefndu málinu fyrir Hæstarétt Íslands, sem nú hefur kveðið upp sinn dóm, eins og áður greinir.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.