Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Áfrýjunarnefnd samkeppnismála klofin í afstöðu sinni til þess hvort MS hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína, en staðfestir að MS hafi framið alvarlegt brot með rangri upplýsingagjöf

21. nóvember 2016
snowcap mountain
  • Meirihluti nefndarinnar telur að búvörulög víki samkeppnislögum til hliðar og ógildir því efnisniðurstöðu Samkeppniseftirlitsins.

  • Minnihluti nefndarinnar telur að MS hafi með alvarlegum hætti misnotað markaðsráðandi stöðu sína, og að álögð sekt vegna þess brots hafi verið hæfileg.

  • Nefndin er einhuga um að Mjólkursamsalan hafi framið alvarlegt brot með því að halda mikilvægum gögnum frá Samkeppniseftirlitinu. Sektir vegna þess eru ákveðnar 40.000.000 kr.

 

Áfrýjunarnefnd samkeppnismála kvað í dag upp úrskurð vegna ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins frá 7. júlí síðastliðnum. Þar komst eftirlitið að þeirri niðurstöðu að MS hefði misnotað markaðsráðandi stöðu sína með alvarlegum hætti með því að selja keppinautum sínum grundvallarhráefni til framleiðslu á mjólkurvörum á óeðlilega háu verði á sama tíma og MS sjálft og tengdir aðilar fengu þetta hráefni á mun lægra verði, og að auki undir kostnaðarverði. Var þetta til þess fallið að veita MS og tengdum aðilum verulegt samkeppnisforskot og geta keppinauta til þess að keppa við MS og tengd félög skert með alvarlegum hætti. Taldi Samkeppniseftirlitið að háttsemin væri til þess fallin að skaða á endanum hagsmuni  bæði neytenda og bænda. Þá lá fyrir að MS veitti Samkeppniseftirlitinu rangar upplýsingar og lét undir höfuð leggjast að upplýsa eftirlitið um mikilvæg gögn.

 Meirihluti og minnihluti nefndarinnar eru sammála Samkeppniseftirlitinu um að Mjólkursamsalan hafi með alvarlegum hætti brotið samkeppnislög með því að halda mjög mikilvægum upplýsingum frá Samkeppniseftirlitinu við rannsókn málsins. Hafi félagið torveldað rannsóknina með því háttalagi. Staðfesti nefndin þá stjórnvaldssekt sem Samkeppniseftirlitið lagði á MS vegna þessa.  

Í úrskurði sínu klofnaði áfrýjunarnefndin hins vegar í afstöðu sinni til þess hvort um misnotkun á markaðsráðandi stöðu hefði verið að ræða. Þannig byggir meirihluti nefndarinnar (tveir nefndarmenn) á því að ákvæði búvörulaga, sem heimilar mjólkurafurðastöðvum samstarf sem ella væri ólögmætt samkvæmt samkeppnislögum, hafi í raun heimilað MS að selja hrámjólk á lægra verði til tengdra aðila heldur en til sjálfstæðra afurðastöðva. Á þessum forsendum fellir meirihlutinn ákvörðun Samkeppniseftirlitsins út gildi að þessu leyti. 

Minnihluti nefndarinnar (formaður nefndarinnar) lýsti sig hins vegar sammála þeirri niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins að MS „hafi brotið alvarlega gegn 11. gr. samkeppnislaga. Einnig tel ég að sú sekt sem ákveðin var í hinni kærðu ákvörðun sé rétt ákveðin …“ 

Nefndin fellst ekki á gagnrýni MS á málsmeðferð og rannsókn Samkeppniseftirlitsins. 

Samkeppniseftirlitið mun nú fara yfir úrskurðinn og taka afstöðu til þess hvort rétt sé að bera hann undir dómstóla.

 

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.