Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Miklir yfirburðir Forlagsins ehf. í almennri bókaútgáfu á Íslandi

21. desember 2017
snowcap mountain

Samkeppniseftirlitið hefur í dag birt ákvörðun nr. 47/2017 þar sem lokið er umfangsmikilli athugun á markaði fyrir bókaútgáfu á Íslandi. Tilefnið er beiðni Forlagsins ehf. sem er stærsti bókaútgefandi landsins um endurupptöku á skilyrðum sem sett voru í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 8/2008 vegna samruna JPV útgáfu ehf. og Vegamóta ehf. Við þann samruna varð Forlagið til í núverandi mynd sem öflugasta bókaútgáfa landsins og voru skilyrðin sett til að eyða skaðlegum áhrifum samrunans á samkeppni. 

Forlagið hefur óskað eftir að skilyrðin verði felld úr gildi eða dregið úr þeim. Hefur Forlagið mótmælt skilgreiningu markaðarins í málinu og mati á hlutdeild félagsins. Þá telur Forlagið að ákvörðun nr. 8/2008 hafi byggst á röngum forsendum, að aðstæður hafi breyst og einnig að skilyrðin íþyngi félaginu í rekstri. 

Athugun Samkeppniseftirlitsins á bókamarkaðnum núna sýnir að staða Forlagsins hefur ekki breyst í meginatriðum á liðnum árum. Forlagið er enn stærsta bókaútgáfan á Íslandi með 45-50% hlutdeild í almennri bókaútgáfu og er með u.þ.b. fjórfalt meiri hlutdeild en sá útgefandi sem næst kemur að stærð sem er Bjartur-Veröld. Þá er Forlagið með mikla breidd í útgáfu samanborið við flesta aðra bókaútgefendur. Er það því niðurstaðan í ákvörðun eftirlitsins að Forlagið sé ennþá í markaðsráðandi stöðu á bókamarkaði. 

Samkeppniseftirlitið telur því mikilvægt að skilyrðin, sem Forlagið óskar nú eftir að verði felld niður, og snúast aðallega um að Forlagið beiti ekki styrk sínum gagnvart keppinautum og skaði þannig samkeppni, gildi áfram. Skiptir líka máli að meirihluti keppinauta sem tók þátt í könnun eftirlitsins telja að skilyrðin hafi stuðlað að aukinni samkeppni og að ekki séu forsendur til að fella þau úr gildi að hluta til eða öllu leyti. Þá telur eftirlitið að Forlagið hafi ekki rökstutt hvernig skilyrðin setji félaginu í raun skorður og hvaða áhrif það hafi fyrir það og aðra ef þau yrðu felld niður.  

Forsagan og nánar um þau skilyrði sem Forlagið á að hlíta:

Þann 5. febrúar 2008 tók Samkeppniseftirlitið ákvörðun nr. 8/2008 um samruna JPV útgáfu ehf. og Vegamóta ehf. (útgáfa sem þá var í eigu Máls og menningar). Til að eyða þeim samkeppnislegu vandamálum sem Samkeppniseftirlitið taldi að samruninn hefði í för með sér lögðu samrunaaðilar fram tillögur að skilyrðum sem honum yrðu sett. Sátt náðist um skilyrðin sem í framhaldi voru sett með ákvörðuninni.

 

Þau skilyrði sem ennþá eru í gildi fela m.a. í sér að:

  • Forlagið má aðeins semja um útgáfurétt á einum bókartitli hverju sinni við hvern rithöfund.

  • Forlaginu er óheimilt að veita endurseljendum bóka afslátt frá heildsöluverði bóka sinna nema Forlagið geti með óyggjandi hætti sýnt fram á kostnaðarlegt hagræði af viðskiptum við viðkomandi endurseljanda sem sé í samræmi við afsláttinn.

  • Forlaginu er óheimilt að mismuna endurseljendum bóka í hvers kyns kynningarstarfi, auglýsingaherferðum, eða með efni sem snýr að uppstillingu og auglýsingu bóka í verslunum endurseljenda nema slík mismunun byggist á almennum viðskiptalegum sjónarmiðum.

  • Forlaginu er óheimilt að gera hvers kyns einkakaupasamninga við endurseljendur bóka.

  • Forlaginu er óheimilt að hafa nokkur afskipti af söluverði endurseljenda þeirra bóka sem félagið gefur út eða birta með nokkru móti söluverð endurseljenda.

 

Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 47/2017 (70 bls.)

Aðrar fréttir

Allar fréttir og greinar

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

  • 11. maí 2026
  • Fréttir

Eftirlit nauðsynlegt á fákeppnismarkaði

  • 4. maí 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samkeppniseftirlitinu falið að fylgjast með verðlagningu á eldsneyti

  • 30. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

„Gríðarlegir hagsmunir fyrir íslenskt samfélag að það sé samkeppni á fjármálamarkaði“

  • 27. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Sumarstarf fyrir hagfræðinema hjá SKE

  • 22. apríl 2026
  • Fréttir
Semsett mynd/SKE

Samruni Heklu og Bílson – umsagnarferli

  • 20. apríl 2026
  • Fréttir
Samkeppniseftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að samruni Ferro Zink ehf. og Metal ehf. hindri virka samkeppni og skuli því ógiltur.

Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro Zink og Metal

  • 17. apríl 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið skilar umsögn um frumvarp um lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti

  • 16. apríl 2026
  • Fréttir

Samkeppnismat lykilatriði til að efla samkeppnishæfni

  • 10. apríl 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Greinar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.