Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Vegna umfjöllunar fjölmiðla og framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins um rannsókn á sjávarútvegsfyrirtækjum

6. apríl 2018
snowcap mountain

Að undanförnu hefur verið fjallað um það á opinberum vettvangi að Samkeppniseftirlitið hafi lokið rannsókn á mögulegu samkeppnishamlandi samráði sjávarútvegsfyrirtækja. Þannig birtist frétt á forsíðu Fréttablaðsins þann 27. mars sl. með fyrirsögninni „Sluppu undan rannsókn vegna anna“.

Þessi frétt varð framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins tilefni til þess að skrifa pistil á heimasíðu samtakanna þann 28. mars sl. Þar er fullyrt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins hafi ákveðið „að sleppa nokkrum fyrirtækjum við rannsókn vegna anna við samrunamál“. Segir framkvæmdastjóri SA að með því hafi verið vakin þau hugrenningatengsl að í rekstri fyrirtækjanna hafi eitthvað misjafnt átt sér stað. Síðan segir: „Forstjórinn eftirlætur dómstól götunnar um að komast að niðurstöðu sem hann vildi komast að“.

Í framhaldi af pistli framkvæmdastjóra SA birti fjölmiðillinn Hringbraut frétt með fyrirsögn þar sem segir að brot hafi verið framin, en í fréttinni er vísað í pistil framkvæmdastjóra SA.

Vegna framangreindrar umfjöllunar vill Samkeppniseftirlitið taka fram eftirfarandi:

Í aðdraganda umfjöllunar Fréttablaðsins óskaði blaðið eftir upplýsingum um umrædda rannsókn. Var fjölmiðillinn upplýstur um að Samkeppniseftirlitið hefði lokið viðkomandi rannsókn án efnislegrar niðurstöðu. Tekið var fram að ástæðu þessara málalykta mætti rekja til mikilla anna við rannsókn samrunamála síðustu misseri, en vegna lögbundinna tímafresta í samrunamálum yrði eftirlitið ávallt að forgangsraða slíkum málum.  Því hefði verið ákveðið að ljúka málinu á þessu stigi án efnislegrar niðurstöðu. Þá var upplýst um að kæmi sama eða sambærileg háttsemi síðar til skoðunar myndi eftirlitið leggja nýjan grundvöll að þeirri rannsókn.  Í svari Samkeppniseftirlitsins við fyrirspurn fjölmiðilsins var aldrei notað orðalagið að þau fyrirtæki sem um ræðir hefðu „sloppið undan rannsókn“.

Samkeppniseftirlitið áréttar það sem áður hefur komið fram af þess hálfu, að framangreindri rannsókn var lokið án efnislegrar niðurstöðu. Í því felst eðli máls samkvæmt að ekki er forsvaranlegt að draga þá ályktun að umrædd fyrirtæki hafi framið brot á samkeppnislögum. Ályktanir um að þessi fyrirtæki hafi sloppið undan rannsókn eða framið brot eru því ekki Samkeppniseftirlitsins. Einnig er úr lausu lofti gripin sú staðhæfing framkvæmdastjóra SA að svör Samkeppniseftirlitsins veki þau hugrenningatengsl að eitthvað misjafnt hafi átt sér stað í rekstri fyrirtækjanna. Af sömu ástæðu er ámælisverð sú fullyrðing framkvæmdastjórans að forstjóri Samkeppniseftirlitsins eftirláti dómstól götunnar að komast að niðurstöðu sem hann hafi viljað komast að.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.