Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Samkeppniseftirlitið samþykkir kaupendur að framboðnum eignum Haga hf. og Olíuverzlunar Íslands hf. vegna samruna félaganna

29. nóvember 2018
snowcap mountain

Samkeppniseftirlitið heimilaði kaup Haga hf. á Olíuverzlun Íslands hf. (Olís) og fasteignafélaginu DGV hf. á grundvelli sáttar við Haga þann 11. september 2018. Samruninn var háður ítarlegum skilyrðum, sem ætlað var að ryðja úr vegi samkeppnishindrunum sem af honum leiddu. Þar á meðal skuldbundu Hagar sig til að selja þrjár dagvöruverslanir Haga, dagvöruhluta verslunar Olís í Stykkishólmi og fimm eldsneytisstöðvar Olís. Sáttina og nánari umfjöllun um hana má finna í frétt Samkeppniseftirlitsins frá 11. september 2018. Framkvæmd samruna Haga og Olís var háð því skilyrði að hæfur kaupandi fyndist að öllum framboðnum eignum. Er í sáttinni kveðið á um að kaupendur uppfylli tiltekin skilyrði sem fela m.a. í sér að þeir séu til þess fallnir og líklegir til að veita Högum og öðrum keppinautum umtalsvert samkeppnislegt aðhald. Í tengslum við sáttina gerðu Hagar annars vegar samning við Atlantsolíu um kaup á umræddum eldsneytisstöðvum og hins vegar samning við Ísborg ehf. um kaup á dagvöruverslununum þremur, auk dagvörusölu Olís í Stykkishólmi. Á grundvelli fyrrgreindrar sáttar var óháðum kunnáttumanni falið að meta þá kaupendur eignanna sem Hagar hafa samið við. Mat kunnáttumaðurinn báða fyrrgreinda kaupendur hæfa. Að undangenginni frekari athugun féllst Samkeppniseftirlitið á að Atlantsolía uppfyllti skilyrði sáttarinnar. Í ljósi álits kunnáttumanns og ákveðinna annarra atriða sem vörðuðu hæfi Ísborgar sem mögulegs kaupanda óskaði Samkeppniseftirlitið ítarlegra gagna frá fyrirtækinu um ýmis atriði sem tengjast hæfismatinu. Í kjölfar þeirrar athugunar komst Samkeppniseftirlitið að þeirri niðurstöðu að Ísborg uppfyllti ekki kröfur um hæfi kaupanda eignanna, a.m.k. að svo stöddu. Í kjölfarið var óskað á ný eftir mati Samkeppniseftirlitsins á hæfi Ísborgar. Réðust aðilar í tilteknar endurbætur á grundvelli þeirra athugasemda sem fram komu í niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins. Í ljósi þeirra lagfæringa sem gerðar hafa verið af hálfu samningsaðila, sem og viðbótarskuldbindinga þeirra, hefur Samkeppniseftirlitið nú metið Ísborg hæfan kaupanda í skilningi sáttarinnar. Eitt þeirra atriða sem Samkeppniseftirlitið og óháður kunnáttumaður tóku til skoðunar var óhæði Ísborgar gagnvart Högum, einkum vegna tengsla fyrirsvarsmanns Ísborgar við óbeinan hluthafa í Högum. Að mati Samkeppniseftirlitsins girða umrædd tengsl ekki fyrir viðskiptin, m.t.t. til þeirra forsendna sem þau eru reist á. Í ljósi framangreinds er samrunaaðilum nú heimilt að framkvæma fyrrgreindan samruna Haga og Olís. Samkeppniseftirlitið mun birta ákvörðun vegna málsins, þar sem gerð verður nánari grein fyrir forsendum málsins, þar á meðal fyrrgreindu mati á hæfi kaupenda.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.