Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Nýjar reglur um meðferð samrunamála tóku gildi um áramótin

6. janúar 2021
snowcap mountain

Tekið hafa gildi nýjar reglur um tilkynningu og málsmeðferð í samrunamálum, nr. 1390/2020. Hinar nýju reglur byggja að verulegu leyti á áður gildandi reglum frá árinu 2008, með síðari breytingum. Þær breytingar sem nú eru gerðar eru einkum af tvennum toga:

1. Formfestar eru breytingar á verklagi við meðferð samrunamála sem miða að aukinni skilvirkni, en eftirlitið hefur ítrekað leitað samráðs vegna þessa, sbr. nánar hér.

2. Reglurnar eru uppfærðar með tilliti til breytinga á samkeppnislögum sem tóku gildi þann 23. júlí á þessu ári.

Helstu breytingar frá fyrri reglum er eftirfarandi:

  • Til samræmis við breytingar á samkeppnislögum eru fjárhæðamörk veltu vegna tilkynninga á samrunum uppfærð, innleidd víðtækari heimild til þess að skila styttri tilkynningu vegna samruna og uppfærð ákvæði um tímafresti til rannsóknar samrunamála. Þá eru ákvæði um samrunagjald endurskoðaðar og færð til samræmis við ný lagafyrirmæli. 
  • Bætt er við ákvæði um samskipti við samrunaaðila í aðdraganda tilkynningar um samruna til undirbúnings málsmeðferðar (e. Pre-notification talks). Með ákvæðinu eru slík samskipti formgerð og markmiðið er að slíkur undirbúningur leiði til skjótari og enn vandaðri meðferðar samrunamála.
  • Bætt er við ákvæði um stöðufundi þar sem Samkeppniseftirlitið kynnir samrunaaðilum stöðu rannsóknarinnar á viðkomandi tímamarki (e. State of play meeting). Tilgangur slíkra stöðufunda er að stuðla að gagnsærri, vandaðri og skilvirkari ákvarðanatöku í samrunamálum.
  • Bætt er við ákvæði um sáttarviðræður við Samkeppniseftirlitið vegna samruna. Tilgangur ákvæðisins er að setja skýrari ramma utan um slíkar viðræður til þess að tryggja bæði skilvirkni og réttindi aðila í slíkum viðræðum.
  • Loks eru gerðar ýmsar smærri breytingar, t.d. um rafræn skil tilkynningar og birtingu samrunaskrár við rannsókn mála.

Hinar nýju reglur leysa af hólmi reglur nr. 684/2008 um tilkynningu samruna og reglur nr. 854/2008 og 901/2011, um breytingu á þeim reglum.

Reglurnar voru birtar í B-deild Stjórnartíðinda þann 29. desember 2020.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.