Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Nýjar reglur um meðferð samrunamála

24. nóvember 2020
snowcap mountain

Samkeppniseftirlitið birtir nú til umsagnar endurskoðaðar reglur um tilkynningu og málsmeðferð í samrunamálum. Hinar nýju reglur byggja að verulegu leyti á gildandi reglum frá árinu 2008, með síðari breytingum. Þær breytingar sem nú eru gerðar eru einkum af tvennum toga:

  1. Formfestar eru breytingar á verklagi við meðferð samrunamála sem miða að aukinni skilvirkni, en eftirlitið hefur áður leitað samráðs vegna þessa og efnt til fundar í fundarröðinni Samtal um samkeppni þar sem gagnlegar umræður fóru fram um reynsluna.
  2. Reglurnar eru uppfærðar með tilliti til breytinga á samkeppnislögum sem tóku gildi þann 23. júlí á þessu ári.

Nánar tiltekið eru hér eftirfarandi helstu breytingarnar sem felast í drögunum :

  • Til samræmis við breytingar á samkeppnislögum eru fjárhæðamörk veltu vegna tilkynninga á samrunum uppfærð, innleidd víðtækari
    heimild til þess að skila styttri tilkynningu vegna samruna og uppfærð
    ákvæði um tímafresti til rannsóknar samrunamála. Þá eru ákvæði um samrunagjald endurskoðaðar og færð til samræmis við ný lagafyrirmæli. 

  • Bætt
    er við ákvæði um heimild til samskipta við samrunaaðila í aðdraganda
    tilkynningar um samruna til undirbúnings málsmeðferðar (e. Pre-notification talks). Með ákvæðinu eru slík samskipti formgerð og markmiðið er að slíkur undirbúningur leiði til skjótari og enn vandaðri meðferðar samrunamála.

  • Bætt
    er við ákvæði um heimild til þess að boða samrunaaðila á stöðufundi þar
    sem Samkeppniseftirlitið kynnir samrunaaðilum stöðu rannsóknarinnar á
    viðkomandi tímamarki (e. State of play meeting). Tilgangur slíkra stöðufunda er að stuðla að gagnsærri, vandaðri og skilvirkari ákvarðanatöku í samrunamálum.

  • Bætt
    er við ákvæði um sáttarviðræður við Samkeppniseftirlitið vegna samruna.
    Tilgangur ákvæðisins er að setja skýrari ramma utan um slíkar viðræður
    til þess að tryggja bæði skilvirkni og réttindi aðila í slíkum viðræðum.
    Í ákvæðinu er fjallað um réttindi og kröfur sem gera verður til
    fyrirtækja sem óska eftir sáttarviðræðum og tímamark þegar tillögur að skilyrðum þurfa að koma fram.

  • Loks er í drögunum að finna ýmsar smærri breytingar, t.a.m. er kveðið á um að jafnframt skuli skila samrunatilkynningu og fylgiskjölum á rafrænu lesanlegu formi og skýrt kveðið á um möguleikann á því að birta samrunaskrár opinberlega við rannsókn samruna.   

Þess
er óskað að athugasemdir við hjálögð drög að reglum um tilkynningu og
málsmeðferð samrunamálum berist með bréfpósti eða á netfangið samkeppni@samkeppni.is eigi síðar en 5. desember nk.

Samhliða
hyggst Samkeppniseftirlitið boða til opins fjarfundar (Samtal um
samkeppni) þar sem áhugasömum gefst tækifæri til að taka þátt í umræðum
um leiðbeiningarnar og hlusta á sjónarmið. Fjarfundurinn verður kynntur
nánar síðar.

Drög að nýjum reglum um tilkynningu og málsmeðferð í samrunamálum.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
SKE eldsneytismarkaður

Eftirlit nauðsynlegt á fákeppnismarkaði

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, sagði í sjónvarpsfréttum RÚV að umfang eftirlits með því hvort lækkun á eldsneytisverði skili s...
  • 4. maí 2026
  • FréttirÍ brennidepli
Eldsneytismarkaður-4

Samkeppniseftirlitinu falið að fylgjast með verðlagningu á eldsneyti

Ný lög um breytingar á lögum um virðisaukaskatt og samkeppnislögum , voru samþykkt á Alþingi í gær 29. apríl. Þau fela í sér tímabundna lækkun á virði...
  • 30. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.