Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Ógilding á kaupum Lyfja og heilsu á Apóteki MOS staðfest

8. mars 2019
snowcap mountain

Í október 2018 ógilti Samkeppniseftirlitið samruna sem áformaður var með kaupum Lyfja og heilsu hf. á Opnu ehf. (Apóteki MOS). Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur í dag staðfest þá ákvörðun Samkeppniseftirlitsins.

Lyf og heilsa rekur 30 apótek um landið annars vegar undir heitinu Lyf og heilsa og hins vegar Apótekarinn. Eru Lyf og heilsa einn stærsti lyfjasmásali á landinu. Opna rekur eitt apótek í Mosfellsbæ, Apótek MOS. Það apótek var opnað um mitt ár 2016. Áður en Apótek MOS hóf starfsemi var eitt apótek í Mosfellsbæ, Apótekarinn í eigu Lyf og heilsu. Eru Apótek MOS og Apótekarinn einu lyfjaverslanirnar í Mosfellsbæ í dag.

Rannsókn Samkeppniseftirlitsins sýndi að innkoma Apóteks MOS hafði mjög góð áhrif á samkeppni á svæðinu. Bauð Apótek MOS upp á nýja þjónustu í formi skipulags verslunarinnar og aðstoðar lyfjafræðinga. Einnig var opnunartími lengri en áður hafði tíðkast í Mosfellsbæ. Sýndu gögn málsins að neytendur tóku þessum nýja valkosti vel og hafði samkeppni frá Apóteki MOS veruleg áhrif á rekstur Apótekarans í Mosfellsbæ.

Upplýst var í málinu að Lyf og heilsa setti sig í samband við forsvarsmann Apóteks MOS um möguleg kaup á félaginu og samningar náðust. Ef samruninn hefði orðið að veruleika hefði sú samkeppni sem Apótek MOS veitti umræddu útibúi Lyfja og heilsu horfið.

Rannsókn Samkeppniseftirlitsins leiddi í ljós að lyfsala í Mosfellsbæ er mjög staðbundin. Rannsókn á kauphegðun neytenda ásamt fleiri gögnum málsins sýndi að neytendur kjósa almennt að eiga viðskipti við apótek sem eru sem næst heilsugæslustöðvum/læknastofum eða heimilum þeirra. Á þetta ekki síst við í tilviki aldraðra eða þegar aðkallandi er að fá lyf í hendur. Af þessu leiddi að samruni umræddra apóteka myndi valda viðskiptavinum þeirra verulegu samkeppnislegu tjóni.

Lyf og heilsa kærði ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Féllst nefndin ekki á það með fyrirtækinu að rannsókn eftirlitsins hefði verið gölluð eða að það hefði lagt rangt mat á skilgreiningu markaðar málsins eða samkeppnisleg áhrif samrunans. Var ógilding Samkeppniseftirlitsins því staðfest.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
SKE eldsneytismarkaður

Eftirlit nauðsynlegt á fákeppnismarkaði

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, sagði í sjónvarpsfréttum RÚV að umfang eftirlits með því hvort lækkun á eldsneytisverði skili s...
  • 4. maí 2026
  • FréttirÍ brennidepli
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.